Grindavíkurbær
Umhverfis- og ferðamálanefnd - Fundur 54
07.07.2021 - Slóð
**54. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 7. júlí 2021 og hófst hann kl. 16:15.**
Fundinn sátu:
Klara Bjarnadóttir, aðalmaður,
Teresa Björnsdóttir, aðalmaður,
Sigríður Etna Marinósdóttir, formaður,
Ásta Agnes Jóhannesdóttir, varamaður.
Fulltrúi Framsóknarflokks boðaði forföll.
Fundargerð ritaði: Kristín María Birgisdóttir, upplýsinga- og markaðsfulltrúi.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að fá að taka mál númer 2106053 á dagskrá með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
**1. Grænir iðngarðar á Suðurnesjum - 2106116**
Farið yfir niðurstöður Suðurnesjavettvangs. Skýrsla um grænan iðngarð á Suðurnesjum lögð fram til kynningar.
2. Kynning fyrir appið VoffaLand - 2106126
Kynning á nýju appi, VoffaLand, sem inniheldur kort fyrir lausagöngusvæði og gerði fyrir hunda á Íslandi. Óskað er eftir að Grindavíkurbær taki þátt í árlegum kostnaði við appið sem nemur 100 þúsund krónum. Nefndin telur verkefnið metnaðarfullt en of kostnaðarsamt fyrir sveitarfélagið að taka þátt í.
**3. Verkfærakista sveitarfélaga í loftslagsmálum - 2106123**
Sveitarfélög á Íslandi vinna að því að rýna í verkfærakistu sveitarfélaga í loftlagsmálum. Nefndin styður það að Grindavíkurbær vinni með Suðurnesjabæ í þeirri rýnivinnu. Sveitarfélögin vinna nú þegar saman að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í gegnum verkefnið Suðurnesjavettvang.
**4. Fjölgun sorptunna - 2103040**
Skrá yfir sorptunnur við gönguleiðir og göngustíga í Grindavík lögð fram. Nefndin leggur til að settar verði upp tunnur á nýjum göngustíg út á golfvöll og við undirgöngin við Víkurbraut. Nefndin felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að útbúa kort með öllum tunnum innan þéttbýlis og setja á kortavef bæjarins.
**5. Hundagerði - Svæði innan Grindavíkurbæjar - 2106053**
Farið yfir stöðuna á væntanlegu hundagerði og hugmyndum að fýsilegum umsjónaraðilum með svæðinu. Nefndin leggur til að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum, inni á heimasíðu bæjarins, til að hafa umsjón með svæðinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
[Fundur 528](/v/25760)
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
[Fundur 115](/v/25756)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25736)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25735)
Bæjarráð / 4. maí 2022
[Fundur 1610](/v/25730)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
[Fundur 101](/v/25727)
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
[Fundur 482](/v/25716)
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
[Fundur 527](/v/25704)
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
[Fundur 100](/v/25688)
Bæjarráð / 20. apríl 2022
[Fundur 1609](/v/25687)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 118](/v/25672)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 117](/v/25671)
Bæjarráð / 6. apríl 2022
[Fundur 1608](/v/25656)
Bæjarráð / 31. mars 2022
[Fundur 1605](/v/25642)
Bæjarstjórn / 30. mars 2022
[Fundur 526](/v/25639)
Bæjarráð / 23. mars 2022
[Fundur 1607](/v/25620)