Suðurnesjabær
Ungmennaráð
= Ungmennaráð =
Dagskrá
=== 1.Hugmyndaboxið ===
2104080
Rætt um og skipulagt að fara af stað með verkefnið hugmyndaboxið í grunnskóla bæjarins.
Afgreiðsla: Ákveðið að fulltrúar ráðsins ætla að framkvæma verkefnið og vinna úr niðurstöðum á næsta fundi ráðsins.
=== 2.Þátttaka barna í íþróttum - frístundabíll ===
2209040
Niðurstöður könnunar um þátttöku barna í frístundastarfi kynntar.
Afgreiðsla: Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er augljóst að frístundabíll myndi nýtast vel og auka þátttöku barna í frístundastarfi. Ungmennráð leggur til við bæjarráð að þjónusta frístundabíls fari í gang sem allra fyrst.
=== 3.Handknattleikur ===
2104080
Ungmennaráð vill lýsa yfir ánægju sinni með nýstofnaða handknattleiksdeild í Suðurnesjabæ. Afar ánægjulegt er að ný íþrótt sé í boði fyrir íbúa.
Afgreiðsla: Ungmennaráð leggur til að stutt verði við nýstofnaða handknattleiksdeild eftir bestu getu og þannig styðja við starfið þannig að það nái að vaxa og dafna fyrir framtíðina.
Fundi slitið - kl. 15:30.