Mosfellsbær
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar - 235
==== 7. febrúar 2023 kl. 07:00, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Örvar Jóhannsson (ÖJ) formaður
- Þorbjörg Sólbjartsdóttir (ÞS) varaformaður
- Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) varamaður
- Ragnar Bjarni Zoega Hreiðarsson (RBH) aðalmaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) aðalmaður
- Ómar Ingþórsson (ÓI) áheyrnarfulltrúi
- Michele Rebora (MR) áheyrnarfulltrúi
- Tómas Guðberg Gíslason umhverfissvið
- Jóhanna Björg Hansen framkvæmdastjóri umhverfissviðs
- Heiða Ágústsdóttir umhverfissvið
== Fundargerð ritaði ==
Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Umhverfis- og loftslagsstefna fyrir Mosfellsbæ ==
[202301124](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202301124#s0s-43wmfew8zyhmnlzb2q1)
Umræða um gerð loftslagsstefnu fyrir Mosfellsbæ, í samræmi við ákvörðun 234. fundar umhverfisnefndar um gerð loftslagsstefnu samhliða endurskoðun á núgildandi umhverfisstefnu bæjarins.
Umhverfisnefnd felur umhverfissviði að vinna minnisblað með tillögu að útfærslu vinnu við gerð umhverfis- og loftslagsstefnu Mosfellsbæjar.
== 2. Gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir friðlýst svæði í Mosfellsbæ ==
[201912163](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/201912163#s0s-43wmfew8zyhmnlzb2q1)
Lögð fram til kynningar lokadrög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið við Varmárósa. Óskað er eftir umsögn umhverfisnefndar áður en drögin fara í opið athugasemdaferli hjá Umhverfisstofnun.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við lokadrög stjórnunar- og verndaráætlunar Varmárósa og þakkar Umhverfisstofnun fyrir gott samstarf.
== 3. Endurskoðun umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar 2023 ==
[202302035](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302035#s0s-43wmfew8zyhmnlzb2q1)
Endurskoðun á fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar
Umhverfisnefnd felur umhverfissviði að vinna tillögur um áframhaldandi verklag umhverfisviðurkenninga.
== 4. Stikaðar gönguleiðir í Mosfellsbæ, Mosfellsbær og Skátafélagið Mosverjar ==
[200811187](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/200811187#s0s-43wmfew8zyhmnlzb2q1)
Lögð fram stöðuskýrsla verkefnisstjóra stikaðra gönguleiða. Ævar Aðalsteinsson verkefnastjóri og fulltrúi Mosverja kemur á fundinn.
Ævar Aðalsteinsson verkefnastjóri Skátafélagsins Mosverja kynnti verkefnið stikaðar gönguleiðir í Mosfellsbæ.
Umhverfisnefnd þakkar Ævari fyrir góða kynningu og lýsir ánægju sinni með verkefnið.
== Gestir ==
- Ævar Aðalsteinsson