Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1634
**1634. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 7. febrúar 2023 og hófst hann kl. 15:00.**
**Fundinn sátu:** Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
**Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
**Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
**Dagskrá:**
1. Móttaka flóttafólks - 2301053
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 31. janúar sl. er lagt fram.
**2. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja - 2210067**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð frumdrög að hönnun á nýju sundlaugarsvæði, dags. 2. febrúar 2023, eru lögð fram.
Fyrirhugaður er íbúafundur í Gjánni næstkomandi þriðjudag kl. 17:00.
**3. Framkvæmdir í Hópinu 2023 - 2301120**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram bókun af fundi frístunda- og menningarnefndar nr. 123, dags. 1.2.2023.
Bókun
Fulltrúi M-lista leggur til að það verði farið í það strax að skipta út gervigrasinu í Hópinu.
Fundarhlé tekið kl. 17:45 - 18:00
Bókun
Meirihluti B, D og U tekur undir bókun frístunda- og menningarnefndar að skoða þann möguleika að skipta gervigrasinu í Hópinu út fyrr en áætlað var. Viðgerð er hafin á gervigrasinu í samræmi við úttekt fagaðila en bregðast þurfti strax við skemmdum eins og áætlað var í fjárhagsáætlun. Að viðgerð lokinni, ef mat á ástandi gervigrassins er verra en áætlað var, verður aðilum falið að undirbúa útboð og kanna afhendingartíma á nýju gervigrasi. Ákvörðun verður tekin um framhaldið í vinnu við fjárhagsáætlun í haust.
**4. Þjónustukönnun Janusar heilsueflingar 2023 - 2301091**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Þjónustukönnun meðal þátttakenda í Fjölþættri heilsueflingu 65 lögð fram.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með fjölþætta heilsueflingu 65 hjá Janusi heilsueflingu.
**5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar - 2301116**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli 10. apríl 2024. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd sem í eiga sæti fimm fulltrúar. Fulltrúarnir skulu endurspegla fjölbreytni samfélagsins í Grindavík.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna erindisbréf fyrir nefndina.
**6. Grunnskólinn við Ásabraut - breytingar á rýmum í kennslustofur - 2301127**
Lagt fram erindi frá grunnskólanum vegna vöntunar á sérkennslurými.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að kostnaðarmeta verkefnið og koma með viðaukabeiðni fyrir bæjarráð.
**7. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín - 2302005**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Meirihluti leggur upp með að heimgreiðslurnar verði ekki skilyrtar heldur val foreldra frá 12 mánaða aldri, að loknu fæðingarorlofi, þangað til barnið fer í daggæslu eða á leikskóla.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í félagsmálanefnd og fræðslunefnd.
**8. Sameiginlegt erindi HSS og Grindavíkurbæjar til heilbrigðisráðherra - 2205239**
Lagt fram bréf til heilbrigðisráðherra vegna hugmynda um að heilsugæsla í Grindavík fái nýja aðstöðu á efri hæð félagsaðstöðu eldri borgara.
Heilbrigðisráðherra tekur vel í erindið en næsta skref er að fá svar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með velvilja ráðherra í garð verkefnisins og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
**9. Rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar - 2301068**
Farið yfir stöðu mála.
**10. Kosning í nefndir samkvæmt C-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - 2205252**
Lögð fram tillaga um að Atli Geir Júlíusson verði aðalmaður í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja í stað Birgittu Ránar Friðfinnsdóttur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40
== AÐRAR FUNDARGERÐIR ==
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
Afgreiðslunefnd byggingamála / 19. janúar 2023
Bæjarráð / 18. janúar 2023
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
Fræðslunefnd / 11. janúar 2023
Bæjarráð / 11. janúar 2023
Bæjarstjórn / 11. janúar 2023
Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023
Bæjarstjórn / 28. desember 2022
Öldungaráð / 21. desember 2022
Bæjarráð / 21. desember 2022
Skipulagsnefnd / 20. desember 2022
Fræðslunefnd / 19. desember 2022
Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. desember 2022
Bæjarstjórn / 14. desember 2022
Hafnarstjórn / 13. desember 2022
Öldungaráð / 13. desember 2022
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
Bæjarráð / 7. desember 2022
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
Bæjarráð / 23. nóvember 2022
Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022
Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. nóvember 2022
Bæjarráð / 16. nóvember 2022
Bæjarráð / 10. nóvember 2022
Skipulagsnefnd / 8. nóvember 2022
Frístunda- og menningarnefnd / 3. nóvember 2022