Mosfellsbær
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 65
==== 8. febrúar 2023 kl. 11:45, ====
í Kjarna
== Fundinn sátu ==
- Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
== Fundargerð ritaði ==
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Bjarkarholt 32-34 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202212274](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212274#wik1gzv8c0ihvuouehjda1)
Borist hefur umsókn um byggingarleyfi, frá Render 2 ehf., fyrir steinsteypt fjölbýlishús með 100 öryggisíbúðum á fjórum hæðum ásamt kjallara og bílgeymslu við Bjarkarholt 32-34, í samræmi við gögn. Umsókninni var vísað til umsagnar skipulagsnefndar eða skipulagsfulltrúa á 491. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem að fjöldi fermetra í kjallara húss er umfram það sem heimilt er skv. deiliskipulagi lóðarinnar, staðfest 08.12.2021.
Samkvæmt deiliskipulagi Bjarkarholts 32-34 er gert ráð fyrir að heildarfjöldi fermetra lóðar, ofan- og neðanjarðar, séu mest 11.900 m². Aðaluppdrættir húss sýna byggingu að heildarfermetrum 11.776,5 sem samræmist samanlögðum heimildum. Kjallari og bílgeymsla er á uppdráttum samtals 3.827 m² eða 827 m² umfram að sem deiliskipulag gerir ráð fyrir. Fjölgun fermetra í kjallara rúmast innan byggingarreitar og heildarfermetrafjölda byggingar samkvæmt deiliskipulagi. Með hliðsjón af 5.8.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 telur skipulagsfulltrúi frávik skipulags óverulegt þar sem landnotkun, nýtingarhlutfall, útlit, formi, útsýn, skuggavarp eða innsýn breytist ekki vegna umræddra fermetra í kjallara sem ekki verða sýnilegir.
Í ljósi rökstuðnings samþykkir skipulagsfulltrúi, með vísan afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, að víkja frá kröfu um breytingu deiliskipulags og grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslag nr. 123/2010. Byggingarfulltrúa er því heimilt að samþykkja byggingaráform og gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.
Málsaðili skal greiða þann hugsanlega kostnað sem af samþykktinni hlýst, í samræmi við samþykktir og gjaldskrá Mosfellsbæjar.