Mosfellsbær
Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1567
==== 9. febrúar 2023 kl. 07:30, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
- Helga Jóhannesdóttir (HJó) varamaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
- Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) aðalmaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Þóra Margrét Hjaltested embættismaður
== Fundargerð ritaði ==
Þóra Margrét Hjaltested lögmaður
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Húsbyggingasjóður Landssamtakanna Þroskahjálpar ==
[202002120](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202002120#4-frzxl3nkgprhiywecg4q1)
Samningur Þroskahjálpar við HMS um vilyrði fyrir stofnframlögum til íbúakjarna í Mosfellsbæ.
Bæjarráð staðfestir að fyrirhugað sé að veita stofnframlög vegna byggingar Þorskahjálpar á fimm íbúðakjarna á árinu.
== Gestir ==
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
== 2. Vatnsborun Hádegisholti ==
[202105334](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202105334#4-frzxl3nkgprhiywecg4q1)
Lögð fyrir bæjarráð til upplýsingar niðurstaða borunar í Hádegisholti.
Lagt fram.
== Gestir ==
- Jóhanna B. Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs
== 3. Beiðni um tilnefningu í stjórn áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins ==
[202302090](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302090#4-frzxl3nkgprhiywecg4q1)
Beiðni um að Mosfellsbær tilnefni aðalmann í stjórn áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins til næstu tveggja ára.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að tilnefna Sævar Birgisson, bæjarfulltrúa, sem aðalmann í stjórn áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins af hálfu Mosfellsbæjar.
== 4. Þjónusta sveitarfélaga 2022 - Gallup ==
[202302063](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302063#4-frzxl3nkgprhiywecg4q1)
Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup fyrir Mosfellsbæ á árinu 2022 kynntar af fulltrúa Gallup.
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, frá Gallup og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Mosfellsbæjar á árinu 2022. Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að senda könnunina til kynningar í fastanefndum sveitarfélagsins.
Könnunin sýnir að íbúar eru mjög ánægðir með búsetu í Mosfellsbæ og mælast í öðru sæti á landsvísu. Ánægja mælist yfir meðaltali stærstu sveitarfélaga í níu tilvikum af 12 sem mældir eru. Það eru þó tækifæri til úrbóta og er mikilvægt að skoða þá málaflokka betur.
== Gestir ==
- Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
- Matthías Þorvaldsson, Gallup
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
== 5. Lokun tjaldsvæðis Mosfellsbæjar ==
[202302067](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302067#4-frzxl3nkgprhiywecg4q1)
Ósk um að bæjarráð staðfesti ákvörðun um lokun tjaldsvæðis Mosfellsbæjar á Varmárhóli.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum lokun á tjaldsvæði Mosfellsbæjar á Varmárhóli. Jafnframt samþykkt að málið verði kynnt fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd.
== Gestir ==
- Jóhanna B. Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs
== 6. Skarhólabraut - Stofnlögn að vatnstanki og gatnagerð ==
[202212210](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212210#4-frzxl3nkgprhiywecg4q1)
Óskað er eftir að bæjarráð heimili útboð á lagningu stofnlagnar (þrýstilögn) að vatnstanki í Úlfarsfellshlíðum, ennfremur að gera lóðina Skarhólabraut 3 byggingarhæfa.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila umhverfissviði að bjóða út lagningu stofnlagnar að vatnstakni í Úlfarsfellshlíðum í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.
== Gestir ==
- Jóhanna B. Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs