Mosfellsbær
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 584
==== 10. febrúar 2023 kl. 07:00, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Valdimar Birgisson (VBi) formaður
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) varaformaður
- Hjörtur Örn Arnarson (HÖA) varamaður
- Helga Jóhannesdóttir (HJó) aðalmaður
- Ómar Ingþórsson (ÓI) aðalmaður
- Haukur Örn Harðarson (HÖH) áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
== Fundargerð ritaði ==
Árni Jón Sigfússon Byggingarfulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Suðurlandsvegur innan Mosfellsbæjar og Kópavogs - sameiginlegt deiliskipulag ==
[202205199](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202205199#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu drög að svörum og umsögnum athugasemda, í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, við kynnt nýtt deiliskipulag fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar innan sveitarfélagamarka Mosfellsbæjar og Kópavogs. Umsagnir eru unnar sameiginlega af sveitarfélögunum báðum við þeim ábendingum sem bárust. Athugasemdir voru kynntar á 574. fundi nefndarinnar. Lögð fram að nýju, að lokinni kynningu, gögn og tillaga verkfræðistofunnar Eflu, f.h. umhverfissviðs Kópavogsbæjar og Mosfellsbæjar, að deiliskipulagi Suðurlandsvegar. Skipulagssvæðið er rúmir 67,3 ha að stærð, um 5,6 km að lengd og liggur frá Geithálsi vestan Hólmsár, í Mosfellsbæ, að tvíbreiðum hluta Suðurlandsvegar, austan Lögbergsbrekku. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi Suðurlandsvegur verði breikkaður til norðurs og verði samfelldur stofnvegur með tveimur akreinum í hvora akstursstefnu. Gert er ráð fyrir vegamótum við Geirland ásamt hliðarvegum/tengivegum í Lækjarbotnum, Gunnarshólma og Geirlandi. Markmið deiliskipulagsins er að auka þjónustustig samgangna á svæðinu og bæta umferðaröryggi. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð, dags. 30.06.2022 og uppfærð 02.02.2023, mkv. gagna 1:10.000.
Ómar Ingþórsson fulltrúi S-lista, Samfylkingar, víkur af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins vegna vanhæfis.
***
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna ásamt tillögu að svörun og umsögnum innsendra athugasemda, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa beggja sveitarfélaga. Deiliskipulagið skal hljóta afgreiðslu skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
[FylgiskjalSamantekt Kópavogs og Mosfellsbæjar um málsmeðferð tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsvegar.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=MBGnFcKZC0iVkm2U6DG_Mw&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=Samantekt Kópavogs og Mosfellsbæjar um málsmeðferð tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsvegar.pdf) [FylgiskjalFylgiskjal 1 - Umsagnir umsagnaraðila_ DSK Suðurlandsvegar - Fossvellir - Hólmsá_2023_02_02.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=_MQILoluFUW3zTIwnQjUHw&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=Fylgiskjal 1 - Umsagnir umsagnaraðila_ DSK Suðurlandsvegar - Fossvellir - Hólmsá_2023_02_02.pdf) [FylgiskjalFylgiskjal 2 - Almennar umsagnir og athugasemdir_ DSK Suðurlandsvegar - Fossvellir - Hólmsá_2023_02_02.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=WoBrkBoXL0a89ckglwRDzA&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=Fylgiskjal 2 - Almennar umsagnir og athugasemdir_ DSK Suðurlandsvegar - Fossvellir - Hólmsá_2023_02_02.pdf) [FylgiskjalGreinargerð_ DSK Suðurlandsvegar - Fossvellir - Hólmsá_2023_02_02.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=NZKpGBlmakSEa5ihoORHxg&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=Greinargerð_ DSK Suðurlandsvegar - Fossvellir - Hólmsá_2023_02_02.pdf) [FylgiskjalSuðurlandsv-deilisk Samantekt um málsmeðferð og umsögn um athugasemdir feb2023.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=MFHoPdc6USZXccYRMo1vA&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=Suðurlandsv-deilisk Samantekt um málsmeðferð og umsögn um athugasemdir feb2023.pdf) [FylgiskjalB102_2023_02_02.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=DsYe3psRNkeSJqhyoU75Q&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=B102_2023_02_02.pdf) [FylgiskjalB103_2023_02_02.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=RwxedBKTtEeTfODeGeJgtg&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=B103_2023_02_02.pdf) [FylgiskjalB101_2023_02_02.pdf](https://ibuagatt.mos.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=Uod5cLjtckuP7fTg61hYxg&meetingid=QA31gI32FkqScq3MEmd1HA1&filename=B101_2023_02_02.pdf)
== 2. Orkugarður - deiliskipulag og uppbygging í Reykjahverfi ==
[202101213](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202101213#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu drög að svörum og umsögnum athugasemda, í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, við kynnta deiliskipulagsbreytingu fyrir áningarstað í Reykjahverfi og endastöð Strætó. Athugasemdir voru kynntar á 582. fundi nefndarinnar. Lagðir eru fram til afgreiðslu uppfærður uppdráttur í samræmi við athugasemdir Veitna ohf.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna ásamt tillögu að svörun og umsögnum innsendra athugasemda, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. Deiliskipulagið skal hljóta afgreiðslu skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 3. Hamrabrekkur 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202209214](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202209214#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu drög að svörum og umsögnum athugasemda, í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, við grenndarkynningu byggingarleyfis að Hamrabrekkum 7. Athugasemdir voru kynntar á 582. fundi nefndarinnar. Lagðir eru fram til afgreiðslu uppfærðir uppdrættir í samræmi við athugasemdir Heilbrigðiseftirlitsins HEF.
Skipulagsnefnd samþykkir grenndarkynnt byggingaráform, skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt tillögu að svörun og umsögnum innsendra ábendinga, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. Byggingarfulltrúa er því heimilt að samþykkja byggingaráform og gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 4. Hamraborg - Langitangi - gatnagerð ==
[202201407](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202201407#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Lögð er fram til afgreiðslu umsókn frá umhverfissviði Mosfellsbæjar, dags. 24.01.2023 um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð nýrrar húsagötu að Langatanga við Hamraborg, í samræmi við gögn.
Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, á grunni fyrirliggjandi gagna og gildandi deiliskipulags.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 5. Seltjarnarnes - gistiþjónusta á íbúðarsvæðum - breyting á Aðalskipulagi 2015-2033 ==
[202301558](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202301558#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Borist hefur erindi frá Seltjarnarnesbæ, dags. 26.01.2023, með ósk um umsögn á vinnslutillögu fyrir aðalskipulagsbreytingu Seltjarnarnesbæjar 2015-2033. Breyta á skilmálum um atvinnustarfsemi á íbúðarsvæðum þar sem sett verða ákvæði um gistiþjónustu og skilyrði sem rekstrarleyfisskyld gistiheimili þurfa að uppfylla. Breytingin er gerð á greinargerð, uppdrættir eru óbreyttir. Umsagnarfrestur er til og með 23.02.2023.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við kynnt gögn.
== 6. Hagsmunamál frístundabyggðarinnar við norðanvert Hafravatn ==
[202106212](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202106212#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Borist hefur erindi frá Daníel Þórarinssyni, f.h. Hafrabyggðar, dags. 28.12.2022, með ósk um endurskoðun ákvæða aðalskipulags um byggingarheimildir húsa við norðanvert Hafravatn.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsfulltrúa falin áframhaldandi vinna málsins.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 7. Helgafellsásar L201197 og L201201 - aðalskipulagsbreyting ==
[202302116](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302116#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Borist hefur erindi frá JVST Iceland ehf., f.h. Helgafellsása ehf., dags. 03.01.2023, með ósk um endurskoðun aðalskipulags þar sem breyta á óbyggðu svæði að Helgafellsásum við Þingvallaveg í athafnasvæði og verslunar- og þjónustusvæði.
Skipulagsnefnd vísar til afgreiðslna á 577. fundi nefndarinnar er varða mál landa L201201 og L201197. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum og að ræða við málsaðila.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
=== Fundargerðir til kynningar ===
== 8. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 64 ==
[202301044F](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202301044F#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Fundargerð lögð fram til kynningar.
== 8.1. Hlíðartún 2A-2B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202212397](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212397#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Skipulagsnefnd samþykkti á 582. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform fyrir nýbyggingu parhúss að Hlíðartúni 2A-2B, í samræmi við gögn dags. 01.02.2019. Undirbúin var grenndarkynning fyrir skráða og þinglýsta húseigendur að Hlíðartúni 2, 2A-2B, Aðaltúni 6, 8, 10, 12, 14, 16 og Lækjartúni 1. Mosfellsbæ hafa borist gögn þar sem allir hlutaðeigandi hagaðilar hafa skrifað undir þar til gerðan lista og lýst því yfir að ekki séu gerðar athugasemdir við hina leyfisskyldu framkvæmd, í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 8.2. Merkjateigur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202301116](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202301116#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Skipulagsnefnd samþykkti á 582. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform fyrir breytta notkun húss og uppskiptingu íbúða að Merkjateig 1, í samræmi við gögn dags. 04.01.2023. Undirbúin var grenndarkynning fyrir skráða og þinglýsta húseigendur að Merkjateig 1, 2, 3, Birkiteig 1, 1A, Hamarsteig 2 og 4. Mosfellsbæ hafa borist gögn þar sem allir hlutaðeigandi hagaðilar hafa skrifað undir þar til gerðan lista og lýst því yfir að ekki séu gerðar athugasemdir við hina leyfisskyldu framkvæmd, í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 490 ==
[202302004F](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302004F#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Fundargerð lögð fram til kynningar.
== 9.1. Hlíðartún 2A-2B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202212397](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212397#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Pétur ehf., Hlíðartúni 2, sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílgeymslum á lóðinni Hlíðartún nr.2a, í samræmi við framlögð gögn.
Stærðir mhl. 01: Íbúð 157,6 m², bílgeymsla 39,0 m² 488,7 m³.
Stærðir mhl. 02: Íbúð 224,1 m², bílgeymsla 42,2 m², 613,47 m³.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 9.2. Miðdalsland Lóð F - Umsókn um byggingaráform og byggingarheimild ==
[202210510](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202210510#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Ingibjörg Jóhannsdóttir Gljúfraseli 7 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri frístundahús á einni hæð á lóðinni Miðdalsland lóð F L219989 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 98,0 m², 341,5 m³.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 9.3. Reykjahlíð garðyrkja 123758 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202212067](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212067#qa31gi32fkqscq3memd1ha1)
Hafdís Huld Þrastardóttir Suðurá sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús á lóðinni Reykjahlíð, landnr. 123758, í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: Íbúð 27,1 m², 70,2 m³.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.