Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1614
29.06.2022 - Slóð
**1614. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 28. júní 2022 og hófst hann kl. 16:00.**
**Fundinn sátu:** Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
**Einnig sátu fundinn: **Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
**Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
**Dagskrá:**
**1. Beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags - 2206128**
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 23. júní 2022, vegna beiðni Þórunnar Ólafsdóttur um heimild til að sækja grunnskólanám utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir að greiða fyrir námskostnað vegna skólavistar í Ásgarði og felur sviðsstjóra félagþjónustu- og fræðslusviðs að leggja fyrir viðaukabeiðni vegna málsins.
**2. Umsókn um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags - 2206097**
Lagður fram tölvupóstur vegna beiðni um mótframlag sveitarfélagsins vegna tónlistarnáms á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð samþykkir erindið.
**3. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar - ráðning - 2205256**
Lagður fram ráðningarsamningur við bæjarstjóra, Fannar Jónasson, kjörtímabilið 2022-2026.
Bæjarráð samþykkir ráðningarsamninginn.
**4. Kosning í nefndir samkvæmt D-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - 2205254**
Tillaga lögð fram um skipan aðal- og varamanna í Öldungaráð Grindavíkurbæjar.
*Aðalmenn *
Sæmundur Halldórsson
Klara Bjarnadóttir
Ingi Steinn Ingvarsson
Varamenn
Birgitta Káradóttir
Ásrún Kristinsdóttir
Margrét Birna Valdimarsdóttir
Bæjarráð felur öldungaráði að kjósa formann ráðsins á fyrsta fundi ráðsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða til fyrsta fundar ráðsins.
Fyrri skipan bæjarstjórnar í ráðið fellur jafnframt úr gildi.
*Bókun *
Tillaga meirihluta bæjarstjórnar á skipun í Öldungaráð er með eindæmum. Að útiloka Miðflokkinn, stærsta flokkinn í Grindavík í s.l. sveitarstjórnarkosningum frá ráðinu er alveg útí hött. Töluverður hluti eldri borgara lagði lóð á vogarskálarnar til að kosning Miðflokksins varð eins glæsileg og raunin varð vegna þess að þau treysta okkur til að vinna fyrir þau. Ein af aðaláherslunum frá stofnun Miðflokksdeildar Grindavíkur hefur einmitt verið að bæta þjónustu og kjör eldri borgara.
*F.h. Miðflokksins, *
Hallfríður Hólmgrímsdóttir
Fundarhlé tekið kl. 16:30 til 16:50
*Bókun *.
Meirihluti B, D og U hafnar því að verið sé að útiloka Miðflokkinn úr öldungaráði. Meirihlutinn samanstendur af þremur stjórnmálaöflum sem hver kýs sinn fulltrúa í ráðið. Á síðasta kjörtímabili sat einn fulltrúi bæjarstjórnar í öldungaráði og var það fulltrúi frá Miðflokknum en núna er komið að öðrum að taka þátt í þeim samráðsvettvangi. Framundan eru spennandi tímar í málefnum eldri borgara þar sem fara þarf í stefnumótun með nýrri félagsaðstöðu og uppbyggingu á svæðinu við Víðihlíð. Í málefnasamningi meirihlutans kemur fram að farið verði í framtíðarstefnumótun í tómstunda- og frístundastarfi með það að markmiði að efla tómstundastarf m.a. eldri borgara. Það er ætlun meirihlutans að halda áfram uppbyggingu og stuðningi við eldri borgara í Grindavík
*Meirihluti B-, D- og U-lista *
Bæjarráð samþykkir tilnefninguna með 2 atkvæðum, Hallfríður er á móti.
**5. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIC - Gistihúsgrindavík ehf. - 2204132**
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.
**6. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIG - VK List ehf. - 2202042**
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins innan þeirra tímamarka sem HES hefur sett fram.
**7. Skipulagsnefnd - 102 - 2206006F**
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**8. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 61 - 2206014F **
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15
== AÐRAR FUNDARGERÐIR ==
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. júní 2022
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
Skipulagsnefnd / 24. maí 2022
Afgreiðslunefnd byggingamála / 18. maí 2022
Almannavarnir / 18. maí 2022
Almannavarnir / 18. maí 2022
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
Bæjarráð / 20. apríl 2022
Afgreiðslunefnd byggingamála / 19. apríl 2022
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
Bæjarstjórn / 30. mars 2022
Skipulagsnefnd / 22. mars 2022