Fjarðabyggð
Bæjarráð - 784
**1. 2302055 - Kaup á verkfræði- og arkitektaþjónustu 2018 - 2022**
|Framlagt til kynningar minnisblað fjármálastjóra með samantekt á kaupum Fjarðabyggðar á arkitekta- og verkfræðiþjónustu á árunum 2018 - 2022. Bæjarráð þakkar fyrir samantektina.|
**2. 1807140 - Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt Breiðdalur**
|Framlagt sem trúnaðarmál gögn frá opnun tilboða í ljósleiðarkerfi Fjarðabyggðar í Breiðdal. Tilboð voru opnuð þann 10. febrúar 2023. Tvö tilboð bárust í ljósleiðarakerfið.Bæjarráð samþykkir að taka tilboði hæstbjóðanda þegar tilboðin hafa verið yfirfarin. Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu og undirrita skjöl þar um. |
**3. 2302054 - Erindi frá íbúum við Búðaveg 24**
|Erindi frá íbúum við Búðaveg 34 á Fáskrúðsfirði vegna hávðamengunar við húsið. Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Erindið var einnig sent á umhverfis- og skipulagsnefnd sem mun fjalla um málið á næsta fundi sínum. Bæjarráð mun bíða umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar.|
**4. 2302051 - Yfirlýsing sveitarfélags um að nýta ekki forkaupsrétt á skipi nr. 2793**
|Framlögð beiðni um yfirlýsingu Fjarðabyggðar þess efnis að sveitarfélagið muni ekki nýta sér forkaupsrétt á skipinu Nönnu Ósk II SU 90. Bæjarráð samþykkir að nýta sér ekki forkaupsrétt að skipinu og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.|
**5. 2302022 - Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 13**
|Framlögð lóðaumsókn Stefáns Rafns Stefánssonar um lóðina að Hlíðarbrekku 13 á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði. |
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
**6. 2302009 - Umsókn um lóð Gilsholt 2**
|Framlögð lóðaumsókn Bjarka Ingasonar um lóðina að Gilsholti 2 á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði. |
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
**7. 2302016 - Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði**
|Framlögð umsókn ABC bygginga um breytingar á lóðinni að Búðareyri 29b. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að senda breytingar á lóðinni í grendarkynningu og vísar til staðfestingar í bæjarráði. |
Bæjarráð óskar eftir því við umhverfis- og skipulagsnefnd að málið fari til frekari úrvinnslu áður en það fer til grenndarkynningar og afgreiðslu.
**8. 2302044 - Sérstakur húsnæðisstuðningur 2023**
|Breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir árið 2023. Eftirfarandi breytingar sem gerðar voru á eldri reglum. Tekin voru út tekju- og eignarviðmið í stað þess er vísað er í leiðbeiningar félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Tekju- og eignaviðmið verða birt undir flipanum gjaldskrá á heimasíðu Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir breytingarnar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn. |
[Sérstakur húsnæðisstuðningur.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=czsIouPUiUy6WDIbByK4uQ&meetingid=pXPcrvgduUiuuNCVO_3xtQ1
&filename=Sérstakur húsnæðisstuðningur.pdf)
**9. 2111076 - Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja**
|Vísað til bæjarráðs frá íþrótta- og tómstundanefnd tillögu að breytingum að úthlutungarreglum íþrótta- og frístundastyrkja. |
Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu frá nefndinni áður en að málið verður afgreitt.
**10. 2302047 - Stefnumörkun lögreglunnar á Austurlandi 2023**
|Framlögð til kynningar stefnumörkun lögreglunar á Austurlandi fyrir árið 2023.|
**11. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023**
|Fundargerð 918. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.|
**12. 2302004F - Hafnarstjórn - 291**
|Fundargerð 291. fundar hafnarstjórnar frá 6. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.|
**12.1. 2301162 - Hafnarstjórn erindi frá starfsmönnum**
**12.2. 1911119 - Endurnýjun dráttarbáts - Undirbúningsvinna**
**12.3. 1908100 - Verkefni hafnarsjóðs**
**12.4. 2003091 - Eskifjarðarhöfn - stækkun**
**12.5. 2302006 - Endurnýjun hafnsögumannsskírteinis 2023**
**12.6. 2301226 - Aðalfundur Cruise Iceland 2023**
**12.7. 2301196 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023**
**13. 2302002F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 113**
|Fundargerð 113. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.|
**13.1. 2111076 - Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja**
**13.2. 2301207 - Afmælishald í íþróttahúsum og æskulýðsheimilum**
**13.3. 2301225 - Nýting frístundastyrks vegna sumarfrístundar**
**14. 2301024F - Félagsmálanefnd - 162**
|Fundargerð 162. fundar félagsmálanefndar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.|
**14.1. 2301154 - Fundaáætlun félagsmálanefndar vor 2023**
**14.2. 2302029 - Fjárhagsyfirlit félagsmálanefndar 2022**
**14.3. 2301026 - Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu**
**14.4. 2302033 - Fagteymi á fjölskyldusviði**
**14.5. 2302031 - Kynning nýrra félagslegra íbúða í Fjarðabyggð.**
**14.6. 2302044 - Sérstakur húsnæðisstuðningur 2023**
**15. 2301020F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 17**
|Fundargerð 17. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir fundargerðina.|
**15.1. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira**
**15.2. 2302028 - Naustahvammur 58 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
**15.3. 2302013 - Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði**
**15.4. 2302022 - Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 13**
**15.5. 2302009 - Umsókn um lóð Gilsholt 2**
**15.6. 2302016 - Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði**
**15.7. 2301191 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 17-19**
**15.8. 2302034 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 10**
**15.9. 2301195 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mýrargata 33**
**15.10. 2301217 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásvegur 2**
**15.11. 2301203 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 9**
**15.12. 2301211 - Ósk um umsögn, frístundabyggð við Eiða**
**15.13. 2301185 - Ósk um umsögn, stækkun Skaganámu á Seyðisfirði**
**15.14. 2301186 - Ósk um umsögn, stækkun hafnar á Seyðisfirði**
**15.15. 2302030 - Göngustígur utan við fótboltavöll, Stöðvarfirði**
**15.16. 2302039 - Niðurrif á gömlu fjósi**