Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1635
**1635. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 14. febrúar 2023 og hófst hann kl. 15:00.** **Fundinn sátu: **Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson, varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. **Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. **Dagskrá:** **1. Gallup - Þjónustukönnun 2022 - 2302023**
Matthías Þorvaldsson frá Gallup kynnti í gegnum Teams niðurstöður þjónustukönnunar sem gerð var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins.
**2. Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Grindavíkur - 2212059**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Grindavíkur lögð fram með áorðnum breytingum.
Bæjarráð vísar samþykktinni til bæjarstjórnar til samþykktar.
**3. Bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar 2023 - Breyting og nýr viðauki - 2301072**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar lögð fram með áorðnum breytingum.
Bæjarráð vísar samþykktinni til bæjarstjórnar til samþykktar.
**4. Grunnskólinn við Ásabraut - breytingar á rýmum í kennslustofur - 2301127**
Á fundi bæjarráðs þann 7. febrúar sl. var sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að kostnaðarmeta verkefnið og óska viðauka.
Verkefnið kostar 3 milljónir króna og er óskað viðauka um þá upphæð vegna verkefnisins og að það verði fjármagnað með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
**5. Sorphirða á Suðurnesjum í desember 2022 og janúar 2023 - 2302018**
Lagt fram bréf til forstjóra og rekstrarstjóra Terra, dags. 3. feb. 2023.
**6. Ágangur búfjár - 2302024**
Lagt fram minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 3. febrúar 2023.
Markmið minnisblaðsins er að varpa ljósi á réttarstöðu sveitarfélaga þegar beiðnir um smölun berast sveitarfélögum vegna ágangs búfjár milli landareigna og jafnframt frá afrétti.
**7. Fundargerðir Vinnuverndarnefnd 2023 - 230202**0
Fundargerð vinnuverndarnefndar, nr. 41 dags. 1. febrúar 2023, er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:05.
Bæjarráð / 15. febrúar 2023
[Fundur 1635](/v/26264)
Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023
[Fundur 114](/v/26255)
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
[Fundur 1634](/v/26251)
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
[Fundur 123](/v/26242)
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
[Fundur 537](/v/26240)
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
[Fundur 113](/v/26234)
Bæjarráð / 18. janúar 2023
[Fundur 1633](/v/26217)
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
[Fundur 122](/v/26211)
Fræðslunefnd / 11. janúar 2023
[Fundur 126](/v/26210)
Bæjarráð / 11. janúar 2023
[Fundur 1632](/v/26209)
Bæjarstjórn / 11. janúar 2023
[Fundur 536](/v/26208)
Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023
[Fundur 112](/v/26204)
Bæjarstjórn / 28. desember 2022
[Fundur 535](/v/26184)
Bæjarráð / 21. desember 2022
[Fundur 1631](/v/26169)
Skipulagsnefnd / 20. desember 2022
[Fundur 111](/v/26165)
Fræðslunefnd / 19. desember 2022
[Fundur 125](/v/26162)
Bæjarstjórn / 14. desember 2022
[Fundur 534](/v/26145)
Hafnarstjórn / 13. desember 2022
[Fundur 487](/v/26144)
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
[Fundur 110](/v/26136)
Bæjarráð / 7. desember 2022
[Fundur 1630](/v/26135)
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
[Fundur 533](/v/26129)
Bæjarráð / 23. nóvember 2022
[Fundur 1629](/v/26114)
Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022
[Fundur 109](/v/26113)
Bæjarráð / 16. nóvember 2022
[Fundur 1628](/v/26093)
Bæjarráð / 10. nóvember 2022
[Fundur 1627](/v/26080)