Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1636
**1636. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 21. febrúar 2023 og hófst hann kl. 15:00.** **Fundinn sátu:** Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. **Einnig sat fundinn: **Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Fundargerð ritaði:** Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Dagskrá:** **1. Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur) - 2209068**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Opnunarfundargerð útboðs vegna klæðningar á grunnskólanum við Ásabraut 2 lögð fram.
**2. Umsókn um lóð nr. 2 á iðnaðarsvæði, i5. - 2302054**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Matorka hefur sótt um að fá svæði nr. 2 úthlutað á iðnaðarsvæði i5 til áframhaldandi uppbyggingar fiskeldis á svæðinu. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.
**3. Húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023 - 2302070**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að húsnæðisáætlun Grindavíkurbæjar 2023 lögð fram til upplýsinga og umræðu.
**4. Ferðaþjónustubílar í þjónustumiðstöð - viðaukabeiðni - 2302072**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er viðauka að upphæð 7,5 milljónum króna vegna kaupa á bíl sem nýtist ferðaþjónustu sem þjónustumiðstöðin sinnir fyrir félagsþjónustu- og fræðslusvið sveitarfélagsins. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
**5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar - 2301116**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að erindisbréfi 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar lögð fram.
**6. Beiðni um aukið stöðugildi í félagsþjónustu - 2302080**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir heimild til að ráða í stöðugildi í barnavernd og félagsþjónustu hjá bæjarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leggja fram viðaukabeiðni fyrir bæjarstjórn.
**7. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands - 2111026**
Farið yfir stöðu málsins.
**8. Undanþágur frá verkfalli - 2302058**
Vegna mögulegra verkfalla vill kjarasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga koma því á framfæri við sveitarfélög að sækja um undanþágu fyrir starfsemi sem varðar almannaöryggi.
Auk þess hefur sambandið vakið athygli á því að sveitarstjórnir hugi vel að viðbúnaði og áfallaþoli til að tryggja að ekki skapist hættuástand.
**9. Hjartastuðtæki á stofnunum bæjarins - 2302069**
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að fjárhæð 1.140.000 vegna hjartastuðtækja á stofnunum bæjarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
**10. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar - 2302052**
Lagt fram erindi dags. 10. febrúar sl. frá kjörnefnd Lánasjóðsins þar sem auglýst eftir framboðum til stjórnarsetu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20
Bæjarráð / 23. febrúar 2023
[Fundur 1636](/v/26277)
Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023
[Fundur 115](/v/26273)
Bæjarráð / 15. febrúar 2023
[Fundur 1635](/v/26264)
Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023
[Fundur 114](/v/26255)
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
[Fundur 1634](/v/26251)
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
[Fundur 123](/v/26242)
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
[Fundur 537](/v/26240)
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
[Fundur 113](/v/26234)
Bæjarráð / 18. janúar 2023
[Fundur 1633](/v/26217)
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
[Fundur 122](/v/26211)
Fræðslunefnd / 11. janúar 2023
[Fundur 126](/v/26210)
Bæjarráð / 11. janúar 2023
[Fundur 1632](/v/26209)
Bæjarstjórn / 11. janúar 2023
[Fundur 536](/v/26208)
Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023
[Fundur 112](/v/26204)
Bæjarstjórn / 28. desember 2022
[Fundur 535](/v/26184)
Bæjarráð / 21. desember 2022
[Fundur 1631](/v/26169)
Skipulagsnefnd / 20. desember 2022
[Fundur 111](/v/26165)
Fræðslunefnd / 19. desember 2022
[Fundur 125](/v/26162)
Bæjarstjórn / 14. desember 2022
[Fundur 534](/v/26145)
Hafnarstjórn / 13. desember 2022
[Fundur 487](/v/26144)
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
[Fundur 110](/v/26136)
Bæjarráð / 7. desember 2022
[Fundur 1630](/v/26135)
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
[Fundur 533](/v/26129)
Bæjarráð / 23. nóvember 2022
[Fundur 1629](/v/26114)
Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022
[Fundur 109](/v/26113)