Grindavíkurbær
Bæjarstjórn - Fundur 538
**538. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 28. febrúar 2023 og hófst hann kl. 16:00.** **Fundinn sátu:** Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Irmý Rós Þorsteinsdóttir, varamaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður. **Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir því að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 7. og 8. mál:
2205254: Kosning í nefndir samkvæmt D-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
2212071: Félagsaðstaða eldri borgara - framkvæmd
Samþykkt samhljóða.
**Dagskrá:** **1. Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032, íbúðarsvæði við ÍB3 (Laut). - 2209090**
Til máls tók: Ásrún.
Skipulagstillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd vísar skipulagstillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til samþykktar fyrir auglýsingu á tillögunni í samræmi við 3. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða auglýsingu á aðalskipulagsbreytingunni verður auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir Laut.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
**2. Deiliskipulag við Þorbjörn - 2110060**
Til máls tóku: Ásrún og Helga Dís.
Tillaga að viðbrögðum við umsögnum við skipulagstillöguna lögð fram ásamt uppfærðum gögnum í samræmi við viðbrögð sveitarfélagsins. Skipulagsnefnd samþykkti viðbrögð við umsögnina á 115. fundi sínum þann 20. febrúar sl. og lagði til eftirfarandi breytingar á skipulagstillögunni eins og hún var lögð fram á fundinum eftir breytingar í samræmi við viðbrögð við umsögnum.
- Gert verði ráð fyrir stærri áningarstað sunnan Þorbjarnar.
- Gert verði ráð fyrir 1-2 minni áningarstöðum vestan Lágafells.
Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá er viðbrögðum við umsögnum og uppfærð skipulagstillaga send til bæjarstjórnar til samþykktar, með ofangreindum breytingum.
Skipulagsnefnd leggur það til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna og að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hana til Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
**3. Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Grindavíkur - 2212059**
Til máls tók: Ásrún.
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Grindavíkur lagðar fyrir bæjarstjórn til seinni umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir samþykktina samhljóða.
**4. Bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar 2023 - Breyting og nýr viðauki - 2301072**
Til máls tók: Ásrún.
Breyting á samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar lögð fram til annarrar umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir samþykktina samhljóða.
**5. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - 2205251**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram tillaga um að Anna Elísa Karlsdóttir Long verði formaður í frístunda- og menningarnefnd í stað Sigríðar Etnu Marínósdóttur sem flutt er úr sveitarfélaginu. Sævar Birgisson verði varamaður fyrir Önnu Elísu.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
**6. Kosning í nefndir samkvæmt C-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - 2205252**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram tillaga um að Atli Geir Júlíusson verði aðalmaður í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja í stað Birgittu Ránar Friðfinnsdóttur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**7. Kosning í nefndir samkvæmt D-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - 2205254**
Til máls tók: Ásrún.
Tillaga um að Margrét Birna Valdimarsdóttir verði aðalmaður í öldungaráði Grindavíkur í stað Inga Steins Ingvarssonar og varamaður hennar verði Eva Rún Barðadóttir.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
**8. Félagsaðstaða eldri borgara - framkvæmd - 2212071**
Til máls tók: Ásrún.
Vegna umsóknar Grindavíkurbæjar til framkvæmdasjóðs aldraðra vegna uppbyggingar félagsaðstöðu aldraðra við Austurveg 5 í Grindavík.
Bókun
Fyrirhuguð framkvæmd varðar uppbyggingu félagsaðstöðu eldri borgara við Austurveg 5 í Grindavík. Framkvæmdin er unnin á vegum sveitarfélagsins og er í samræmi við áætlanir sveitarfélagsins um uppbyggingu á þjónustu fyrir aldraða. Framkvæmdin er á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins til næstu tveggja ára. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki á árinu 2024.
**9. Hjartastuðtæki á stofnunum bæjarins - 2302069**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að fjárhæð 1.140.000 vegna hjartastuðtækja á stofnunum bæjarins og að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**10. Beiðni um aukið stöðugildi í félagsþjónustu - 2302080**
Til máls tók: Ásrún.
Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun er lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Um er að ræða 2 ný stöðugildi í félagsþjónustu vegna 9 mánaða á árinu 2023 að fjárhæð 20.520.000 kr. og lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukabeiðnina samhljóða.
**11. Grunnskólinn við Ásabraut - breytingar á rýmum í kennslustofur - 2301127**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 3.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**12. Ferðaþjónustubílar í Þjónustumiðstöð - viðaukabeiðni - 2302072**
Til máls tók: Ásrún.
Óskað er viðauka að upphæð 7,5 milljónum króna vegna kaupa á bíl sem nýtist ferðaþjónustu sem þjónustumiðstöðin sinnir fyrir félagsþjónustu- og fræðslusvið sveitarfélagsins. Viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráð samhljóða.
**13. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - 2302051**
Til máls tók: Ásrún.
Lionsklúbbur Grindavíkur óskar eftir tækifærisleyfi, tímabundnu áfengisleyfi í Gjánni fyrir kútmagakvöld, þann 10.mars næstkomandi samkvæmt meðfylgjandi umsókn og gögnum.
Fyrir liggur jákvæð umsögn slökkviliðs, heilbrigðiseftirlits og byggingafulltrúa.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með veitingu leyfisins.
**14. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta Hrund og Helga Dís.
Fundargerð 918. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 27. janúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**15. Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023 - 2302049**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður og Birgitta Hrund.
Fundargerð 786. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 8. febrúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**16. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2022 - 2203043**
Til máls tóku: Ásrún, Irmý, Birgitta Hrund og Helga Dís.
Fundargerð 297. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja þann 16.12.2022 er lögð fram til kynningar.
**17. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2023 - 2301117**
Til máls tóku: Ásrún og Irmý.
Fundargerð 298. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja þann 26.01.2023 er lögð fram til kynningar.
**18. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2301125**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Birgitta Rán og Birgitta Hrund.
Fundargerð 34. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja þann 12.01.2023 er lögð fram til kynningar
**19. Fundargerðir - Heklan 2023 - 2302019**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Birgitta Rán, Hallfríður, Helga Dís, Irmý og Gunnar Már.
Fundargerð 91. fundar Heklunnar, þann 27. janúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**20. Fundargerðir Öldungaráð Grindavíkur 2023 - 2302047**
Til máls tóku: Ásrún, Irmý, bæjarstjóri, Birgitta Rán, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta Hrund, Gunnar Már og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð 15. fundar Öldungaráðs þann 9. febrúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**21. Bæjarráð Grindavíkur - 1634 - 2302003F**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Helga Dís, bæjarstjóri, Irmý, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Rán og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**22. Bæjarráð Grindavíkur - 1635 - 2302006F**
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Hallfríður, Irmý, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Helga Dís, Birgitta Rán, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**23. Bæjarráð Grindavíkur - 1636 - 2302013F **
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**24. Skipulagsnefnd - 113 - 2301015F **
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Gunnar Már, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Irmý og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**25. Skipulagsnefnd - 114 - 2302004F **
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Hallfríður, Birgitta Hrund og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**26. Skipulagsnefnd - 115 - 2302012F **
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður, Birgitta Rán, Helga Dís, Birgitta Hrund og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**27. Fræðslunefnd - 128 - 2301020F**
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**28. Frístunda- og menningarnefnd - 123 - 2301021F**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Helga Dís, Irmý og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**29. Hafnarstjórn Grindavíkur - 488 - 2302007F **
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**30. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 70 - 2302009F **
Til máls tóku: Ásrún og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50
Bæjarstjórn / 1. mars 2023
[Fundur 538](/v/26284)
Fræðslunefnd / 27. febrúar 2023
[Fundur 128](/v/26282)
Bæjarráð / 23. febrúar 2023
[Fundur 1636](/v/26277)
Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023
[Fundur 115](/v/26273)
Bæjarráð / 15. febrúar 2023
[Fundur 1635](/v/26264)
Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023
[Fundur 114](/v/26255)
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
[Fundur 1634](/v/26251)
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
[Fundur 123](/v/26242)
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
[Fundur 537](/v/26240)
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
[Fundur 113](/v/26234)
Bæjarráð / 18. janúar 2023
[Fundur 1633](/v/26217)
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
[Fundur 122](/v/26211)
Fræðslunefnd / 11. janúar 2023
[Fundur 126](/v/26210)
Bæjarráð / 11. janúar 2023
[Fundur 1632](/v/26209)
Bæjarstjórn / 11. janúar 2023
[Fundur 536](/v/26208)
Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023
[Fundur 112](/v/26204)
Bæjarstjórn / 28. desember 2022
[Fundur 535](/v/26184)
Bæjarráð / 21. desember 2022
[Fundur 1631](/v/26169)
Skipulagsnefnd / 20. desember 2022
[Fundur 111](/v/26165)
Fræðslunefnd / 19. desember 2022
[Fundur 125](/v/26162)
Bæjarstjórn / 14. desember 2022
[Fundur 534](/v/26145)
Hafnarstjórn / 13. desember 2022
[Fundur 487](/v/26144)
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
[Fundur 110](/v/26136)
Bæjarráð / 7. desember 2022
[Fundur 1630](/v/26135)
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
[Fundur 533](/v/26129)