Fjarðabyggð
Bæjarráð - 789
**1. 2212099 - Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2022**
|Kynnt drög að ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2022. Endurskoðendur|
Fjarðabyggðar sátu fundinn í fjarfundi og gerðu grein fyrir vinnu sinni.
Ársreikningur verður tekin til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs.
| |
__Gestir__
|Sigurjón Arnarson endurskoðandi - 00:00|
|Magnús Jónsson endurskoðandi - 00:00|
**2. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL**
|Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur Fjarðabyggðar í janúar auk skatttekna og launakostnaðar í janúar - febrúar 2023.|
**3. 2303164 - Vinnustaðagreining 2022**
|Framlagðar niðurstöður vinnustaðagreiningar sem Gallup framkvæmdi í lok árs 2022 sem trúnaðarmál.|
**4. 2206071 - Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins**
|Framlögð til kynningar drög að kostnaðaráætlun vegna uppbyggingar bragga á safnasvæði Íslenska Stríðsárasafnsins.|
Vísað til stjórnar menningar- og safnastofnunar.
**5. 2303171 - Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð Brák, Fjarðabyggð og Búðingar 2023**
|Framlögð samstarfsyfirlýsing Fjarðabyggðar við Brák íbúaðfélag og Búðinga um uppbyggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð.|
Bæjarráð samþykkir samstarfsyfirlýsinguna.
**6. 2303120 - Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - í samráðsgátt**
|Framlagðar til kynningar úr samráðsgátt fyrirhugaðar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélag. Umsagnarfrestur er til 27. mars nk.|
**7. 2303118 - Erindi frá UMF Leikni mars 2023**
|Framlagt erindi frá Ungmennafélaginu Leikni varðandi aðstöðu fyrir rafíþróttadeild á Fáskrúðsfirði.|
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá framkvæmdasviði vegna stöðu húsnæðis og óskar afstöðu Hollvinasamtaka Skrúðs. Erindið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
**8. 2303142 - Aðalfundur Netorku hf 2023 - starfsárið 2022**
|Lagt fram aðalfundarboð Netorku 28. mars 2023.|
Bæjarráð felur Sigfúsi Þóri Guðlaugssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
**9. 2303119 - Fundur bæjarráðs með Afli starfsgreinafélagi**
|Fjarfundur með formanni Afls starfsgreinafélags vegna íbúðauppbyggingar í Fjarðabyggð og Bjargs íbúðafélags.|
Bæjarráð felur fjármálastjóra að ræða nánar við formann Afls starfsgreinafélags um hugmyndir félagsins um uppbyggingu húsnæðis í samvinnu við Bjarg húsnæðisfélag og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
| |
__Gestir__
|Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Afls - 00:00|