Mosfellsbær
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 587
==== 24. mars 2023 kl. 07:00, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Valdimar Birgisson (VBi) formaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Helga Jóhannesdóttir (HJó) aðalmaður
- Ómar Ingþórsson (ÓI) aðalmaður
- Haukur Örn Harðarson (HÖH) áheyrnarfulltrúi
- Rúnar Þór Guðbrandsson (RÞG) varamaður
- Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
== Fundargerð ritaði ==
Árni Jón Sigfússon Byggingarfulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Kæra til ÚUA vegna synjunar á efnistöku í Hrossadal ==
[202302647](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302647#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Lögð er fram til kynningar kæra Miðdals ehf., landeiganda að Hrossadal L224003, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 28/2023, þar sem kærð er afgreiðsla á 580. fundi skipulagsnefndar, er varðar aðalskipulag landsins. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.
Lagt fram og kynnt.
== 2. Þrastarhöfði 14, 16 og 20 - deiliskipulagsbreyting ==
[202210556](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202210556#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Skipulagsnefnd samþykkti á 582. fundi sínum að kynna og auglýsa til umsagnar og athugasemda breytingu á deiliskipulagi fyrir Þrastarhöfða 14, 16 og 20, samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan felur í sér að breyta heimildum skipulagsins svo hækka megi einbýlishúsin að Þrastarhöfða 14, 16 og 20 um eina hæð, mest 60 fermetra. Athugasemdafrestur var frá 06.02.2023 til og með 09.03.2023. Umsagnir og athugasemdir bárust frá Gunnlaugi Hoffritz og Vilborgu Nåbye, Þrastarhöfða 18, dags. 16.02.2023, Jórunni E Hafsteinsdóttur og Óskari Sigvaldasyni, Þrastarhöfða 22, dags. 16.02.2023, Jóhanni Oddgeirssyni og Herdísi A Friðfinnsdóttóttur, Þrastarhöfða 24, dags. 16.02.2023, Hermanni G. Bridde og Elínu Eiríksdóttur, Þrastarhöfða 43, dags. 27.02.2023, Auði Magnúsdóttur og Friðriki F Sigfússyni, Þrastarhöfða 30, dags. 02.03.2023 og dags. 03.03.2023, Helgu Þorleifsdóttur og Karli Gunnlaugssyni, Þrastarhöfða 28, Georg Andersen og Gyðu Hlín Björnsdóttur, Þrastarhöfða 26, Brynhildi Þ Gunnarsdóttur, Þrastarhöfða 34, Gunnari Steinþórssyni, Þrastarhöfða 36, húsfélagi Þrastarhöfða 4-6, þeim Rannveigu B Gylfadóttur og Jóni Gunnari Axelssyni, Elíasi Péturssyni, Helgu Ólöfu Eiríksdóttur, Steinunni B Magnúsdóttur og Stefáni Bjarnasyni, Degi Ó Guðmundssyni og Maríu Guðmundsdóttur, Sigurði V Fjeldsted, Magneu S Ingimundardóttur, Rúnu S Harðardóttur, Helgu L Kristinsdóttur, Rúnari Ingasyni og Guðrúnu Þ Sigurbjörnsdóttur, Helgu C Magnúsdóttur, Arnari Jóhannssyni, Birni Þ Sigurbjörnssyni, Orra K Karlssyni, Hildi Sigurðardóttur, Aroni Bjarnasyni, Sigurði R Sigurðssyni, Davíð Gunnlaugssyni og Guðbjörgu Þorgeirsdóttur, dags. 07.03.2023, Guðnýju Helgadóttur og Hákoni Gunnarssyni, Danielle P Neben og Steinari Kristjánssyni, Þrastarhöfða 10-12, dags. 08.03.2023, Ósk Kristjánsdóttur, Þrastarhöfða 6, dags. 09.03.2023, Jónasi Rafni Tómassyni, Andreu Guðrúnu Gunnlaugsdóttur, Kristjáni U Nikulássyni og Katrínu Guðlaugsdóttur Blikahöfða 18 og 20, dags. 09.03.2023
Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd vísar innsendum athugasemdum til frekari úrvinnslu og rýni til skipulagsfulltrúa, í samræmi við umræður.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 3. Úugata 10-12 og annað - deiliskipulagsbreyting 5. áfanga Helgafellshverfis ==
[202303025](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202303025#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu deiliskipulagsbreyting fyrir 5. áfanga Helgafellshverfis sem nær til afmarkaðs svæðis gildandi deiliskipulags. Lóðir sem breytingin snertir eru Úugata 2-4, 6-8, 10-12, 62, 64, 73 og 90. Breytingin nær bæði til uppdrátta og greinargerðar. Stærsti hluti breytingar er ný húsagerð fjölbýlis að Úugötu 10-12 tekur gildi með breytingu í greinargerð og með nýju kennisniði. Lóðin er sérstaklega ætluð til útleigu íbúða fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum og hefur henni verið úthlutað til sjálfseignarstofnunarinnar, Bjargs íbúðafélags, til samræmis við markmið rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum. Breyting er einnig gerð á aðkomu sérbýlishúsa að Úugötu 62, 64, 73 og 90 og þeim snúið. Við bætist svo lóðin Úugata 1B fyrir dælustöð vatnsveitu neðst í hverfinu. Annað í skipulagi er óbreytt.
Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan hljóti afgreiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd metur breytinguna þó óverulega með tilliti til þess að breytingar eru að mestu innan óbyggðra lóða. Með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga, um kynningarferli grenndarkynninga, metur skipulagsnefnd aðeins sveitarfélagið hagsmunaaðila máls þar sem framkvæmdir innviða eru enn í gangi og önnur uppbygging ekki hafin. Skipulagsnefnd ákveður því að falla frá kröfum um grenndarkynningu sömu málsgreinar. Breytingartillaga deiliskipulags telst því samþykkt og skal hljóta afgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og annast skipulagsfulltrúi staðfestingu skipulagsins.
Forsendur deiliskipulagsbreytingar fyrir fjölbýli að Úugötu 10-12 eru að lóðinni hefur verið úthlutað til sjálfseignarstofnunarinnar Bjargs íbúðafélags, til samræmis við markmið rammasamnings. Til stendur að byggja þar sérstakar leiguíbúðir sem falla undir lög um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 4. Miðdalur 2 L199723 - deiliskipulag ==
[202105214](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202105214#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Lagt er fram umbeðið minnisblað skipulagsfulltrúa vegna kynntrar skipulagstillögu og ákvæða aðalskipulags um notkun landbúnaðarlands, í samræmi við afgreiðslu á 585. fundi skipulagsnefndar.
Til samræmis við rökstuðning í fyrirliggjandi minnisblaði skipulagsfulltrúa synjar skipulagsnefnd tillögunni þar sem áformin eru ekki í samræmi við skilmála, ákvæði og markmið gildandi aðalskipulags.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 5. Brúarfljót 1 - breyting á innkeyrslu ==
[202303637](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202303637#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Borist hefur erindi frá Guðmundi H. Sveinssyni, f.h. Bergs verktaka, dags. 15.03.2022, með ósk um breytta innkeyrslu lóðar að Brúarfljóti 1, í samræmi við gögn.
Í samræmi við 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 heimilar skipulagsnefnd málsaðila að fullvinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu lóðar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. sömu laga.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
== 6. Hverfisverndarsvæði - Heildarendurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030 ==
[202005057](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202005057#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Tekin eru fyrir til umræðu nefndarinnar ákvæði og drög að hverfisverndarsvæðum nýs aðalskipulags um verndun ásýndar og landslags í sveitarfélaginu.
Frestað vegna tímaskorts.
== 7. Samgöngumiðað skipulag - Heildarendurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030 ==
[202005057](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202005057#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Tekin eru fyrir til umræðu nefndarinnar ákvæði og drög að bíla- og hjólastæðaviðmiðum nýs aðalskipulags í samræmi við áætlanir landsskipulagstefnu 2015-2026 um samgöngumiðað skipulag.
Frestað vegna tímaskorts.
=== Fundargerðir til kynningar ===
== 8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 494 ==
[202303016F](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202303016F#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
== 8.1. Bjargslundur 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202105051](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202105051#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Atli Bjarnason Bjargslundi 17 sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús ásamt því að byggja stakstæða bílgeymslu með geymslu og vinnustofu á neðri hæð á lóðinni Bjargslundur nr. 17 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir:
Mhl. 01 stækkun íbúðarhúss 24,8 m², 72,8 m³
Mhl. 02 - Bílgeymsla 154,8 m², 519,2 m³.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 8.2. Brúarfljót 2, umsókn um byggingarleyfi ==
[202011137](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202011137#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
E18, Logafold 32, sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Brúarfljót nr. 2 í samræmi við framlögð gögn. Sótt er um fjölgun eignarhluta í mhl. 04, stærðir breytast ekki.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 8.3. Laut-Dælustöðvarvegur 4B, Umsókn um byggingarleyfi. ==
[201806286](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/201806286#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Bjarni Össurarson og Sigrún Þorgeirsdóttir, Suðurgötu 35 Reykjavík, sækja um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta einbýlishúss á lóðinni Lindarbyggð nr. 30, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 8.4. Reykjamelur 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202103475](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202103475#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Reykjamelur ehf. Engjavegi 10 sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta parhúss á lóðinni Reykjamelur nr. 12 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 8.5. Reykjamelur 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202103476](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202103476#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Reykjamelur ehf. Engjavegi 10 sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta parhúss á lóðinni Reykjamelur nr. 14
í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.
== 8.6. Skálahlíð 35 - Umsókn um byggingarleyfi ==
[202302425](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202302425#t86rwk9zw0cr3thuiuhejg1)
Fagmót ehf. Laufbrekku 3 Kópavogi sækja um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Skálahlíð nr. 35, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 191,5 m², bílgeymsla 52,5 m², 833,2 m³.
Niðurstaða þessa fundar:
Lagt fram.