Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
787. stjórnarfundur SSS 8. mars 2023
= 787. stjórnarfundur SSS 8. mars 2023 =
Árið 2023, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
miðvikudaginn 8. mars, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum,
Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Friðjón Einarsson, Anton Kristinn Guðmundsson, Björn G. Sæbjörnsson,
Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Friðjón Einarsson formaður stjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á
fundinn.
**Dagskrá:**
Sóknaráætlunarverkefni – Sameining stjórna. Gestir: Róbert Ragnarsson og Bryndís Gunnlaugsdóttir KPMG.Kynningu frestað þar til mánudagsins 13.03., kl. 11.00 en fundurinn verður haldinn á Teams. Framkvæmdastjóra falið að senda út fundarboð. Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurnesja 2023.
Stjórn S.S.S. samþykkir framlögð áhersluverkefni 2023.
3.
*Tölvupóstur frá Byggðastofnun, dags. 13.02.2023, v. C1 úthlutun Byggðaráætlun.* Innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um úthlutun styrkja vegna sértækra verkefna Sóknaráætlunarsvæða C.1. S.S.S. fékk úthlutað styrk að upphæð kr. 10.000.000,- vegna FabLab á Suðurnesjum. Stjórn S.S.S. fagnar styrknum.
4.
*Samningar um skiptingu lífeyrisréttinda við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR). a) Samningur milli Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Kölku. b) Samningur milli Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.*
Framlagðir eru samningar um skiptingu lífeyrisréttinda starfsmanna Kölku annars vegar og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hins vegar. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum var skráður launagreiðandi hluta starfsmanna þessara fyrrnefndu fyrirtækja á árum áður. Samningarnir eru unnir samkvæmt skiptingu sem fram hefur komið í ársreikningum allra aðila, þ.e.a.s. S.S.S., H.E.S og Kölku en ekki hefur verið lagður fram formlegur samningur við LSR fyrr en nú.
Stjórn S.S.S. samþykkir samningana fyrir hönd S.S.S. og felur framkvæmdastjóra að undirrita þá.
5.
*Tölvupóstur dags 06.02.2023 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga v. erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár – minnisblað.* Lagt fram.
6.
*Tölvupóstur dags. 22.02.2023 frá DHL Express, v. húsnæðis fyrir DHL á Keflavíkurflugvelli.*
Stjórn S.S.S. harmar það að staða sem þessi sér komin upp í húsnæðismálum starfsstöðvar DHL Express á Suðurnesjum og hvetur stjórn Isavia til að leita allra leiða til að koma í veg fyrir það að 50 störf flytji af Suðurnesjum vegna húsnæðisskorts.
Framkvæmdastjóra S.S.S. falið að fylgja málinu eftir.
7.
*Erindi dags, 17.02.2023 frá Innviðaráðuneytinu, v. skipan í starfshóp um almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar.* Stjórn S.S.S. tilnefnir Anton Kristinn Guðmundsson og Berglindi Kristinsdóttur í starfshópinn.
8.
*Tölvupóstur dags. 01.03.2023 frá Nefndarsviði Alþingis, beiðni um umsögn um frumvarp til laga um samvinnuverkefni um samgönguverkefni (samfélagsvegir), 485.mál. * *https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0575.pdf*
Lagt fram.
9.
*Tölvupóstur dags. 01.03.2023 frá Nefndarsviði Alþingis, beiðni um umsögn um framvarp til laga um stefnum og aðgerðaráætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála o.fl., 735.mál. * [ Lagt fram. https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/1119.pdf](https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/1119.pdf)
10.
*Önnur mál.*
Drög að ársreikningi 2022 lagður fram. Tap félagsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi nam kr. 11.813.363,- og er tilkomið vegna hækkunar á lífeyrissjóðsskuldbindingum upp á kr. 15.830.881. Reikningurinn verður samþykktur á næsta fundi stjórnar í apríl.
Framkvæmdastjóra falið að senda drögin til aðildarsveitarfélaganna ásamt bókun vegna skuldar HES við S.S.S. en skuldin er kr.51.968.319. Stjórn S.S.S. leggur til að skuldinn verði greidd upp á tveimur árum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:25.