Grindavíkurbær
Bæjarstjórn - Fundur 539
== Fundur 539 ==
- Bæjarstjórn
- 29. mars 2023
**539. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 28. mars 2023 og hófst hann kl. 16:00.**
**Fundinn sátu: **Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður.
**Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
**Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
**Dagskrá:**
1. Hafnargata 12a (Kvikan) - beiðni um viðauka - 2303052
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna framkvæmda við útiglugga og hurðir í Kvikunni. Á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2023 er samþykkt að setja 15 milljónir króna í verkefnið. Umsjónarmanni fasteigna reiknast til að kostnaðurinn verði rúmar 21 milljón króna og því er óskað eftir 6.300.000 kr. viðauka sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**2. Málefni fatlaðs fólks - Beiðni um viðauka - 2303041**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 4.649.000 kr. til að mæta kostnaði við þjónustu í málaflokki fatlaðs fólks. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með hækkun á framlagi jöfnunarsjóðs vegna málefna fatlaðra.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**3. Beiðni um viðauka - Búnaður í leikskóla - 2303042**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 600.000 kr. til kaupa á þurrkara í Laut. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**4. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn - 2211029**
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Óskað er eftir viðauka á fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar fyrir árið 2023 að upphæð 13.312.366 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs samhljóða.
**5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar - 2301116**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Helga Dís.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréf 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar.
Tillaga bæjarráðs að skipun nefndarinnar er eftirfarandi:
Aðalmenn:
Aðalgeir Johansen
Ásrún Helga Kristinsdóttir
Emilía Ósk Jóhannesdóttir
Kristín E. Pálsdóttir
Lára Lind Jakobsdóttir
Varamenn:
Tómas Breki Bjarnason
Valdís Inga Kristinsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða erindisbréfið og tillögu bæjarráðs um skipun í afmælisnefndarinnar. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða að nefndin skipi sér sjálf formann.
**6. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, bæjarstjóri og Helga Dís.
Fundargerð 919. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 28.02.2023 er lögð fram til kynningar.
**7. Fundargerðir - Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 2023 - 2302009**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hallfríður.
Fundargerð 920. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 17.03.2023 er lögð fram til kynningar.
**8. Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023 - 2302049**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, bæjarstjóri, Helga Dís og Birgitta Hrund.
Fundargerð 787. fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 8. mars 2023 er lögð fram til kynningar.
**9. Fundargerðir - Reykjanes Geopark 2022 - 2205198**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund og Helga Dís.
Fundargerð 67. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses. þann 8. desember 2022 er lögð fram til kynningar.
**10. Fundargerðir - Reykjanes Geopark 2023 - 2303018**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, bæjarstjóri, Hjálmar, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Fundargerð 68. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses. þann 19. janúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**11. Fundargerðir - Reykjanes Geopark 2023 - 2303018**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Hjálmar og Hallfríður.
Fundargerð 69. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs ses. þann 10. febrúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**12. Fundargerðir - Heklan 2023 - 2302019**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Hrund og Helga Dís.
Fundargerð 92. fundar Heklunnar, atvinnuþróunarfélags og Markaðsstofu Reykjaness þann 10. mars er 2023 lögð fram til kynningar.
**13. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2023 - 2301117**
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður, Hjálmar, bæjarstjóri og Helga Dís.
Fundargerð 299. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja þann 9. mars 2023 er lögð fram til kynningar.
**14. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023 - 2303065**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Helga Dís, Birgitta Rán, Gunnar Már og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð 544. stjórnarfundar Kölku þann 14.02.2023 er lögð fram til kynningar.
**15. Fundargerðir - Kalka sorpeyðingarstöð 2023 - 2303065**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Helga Dís og Birgitta Hrund.
Fundargerð 545. stjórnarfundar Kölku þann 14.03.2023 er lögð fram til kynningar.
**16. 2023 Fundargerðir stjórnarfunda Keilis - 2302123**
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 172. stjórnarfundar Keilis þann 1. febrúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**17. Fundargerðir Öldungaráð Grindavíkur 2023 - 2302047**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Helga Dís og Hallfríður.
Fundargerð 15. fundar öldungaráðs þann 13. febrúar 2023 er lögð fram til kynningar.
**18. Bæjarráð Grindavíkur - 1637 - 2303005F**
Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Hjálmar, Birgitta Rán, Hallfríður, Helga Dís, Birgitta Hrund, bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**19. Bæjarráð Grindavíkur - 1638 - 2303014F **
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**20. Bæjarráð Grindavíkur - 1639 - 2303017F**
Til máls tóku: Ásrún og Gunnar Már.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**21. Skipulagsnefnd - 116 - 2303006F**
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hjálmar, Helga Dís og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**22. Skipulagsnefnd - 117 - 2303016F**
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**23. Fræðslunefnd - 129 - 2302017F**
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Rán, Birgitta Hrund, bæjarstjóri, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs, Helga Dís og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**24. Frístunda- og menningarnefnd - 124 - 2303004F**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Helga Dís.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05
== AÐRAR FUNDARGERÐIR ==
Bæjarstjórn / 29. mars 2023
Skipulagsnefnd / 22. mars 2023
Frístunda- og menningarnefnd / 9. mars 2023
Bæjarstjórn / 1. mars 2023
Fræðslunefnd / 27. febrúar 2023
Bæjarráð / 23. febrúar 2023
Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023
Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. febrúar 2023
Bæjarráð / 15. febrúar 2023
Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
Afgreiðslunefnd byggingamála / 19. janúar 2023
Bæjarráð / 18. janúar 2023
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
Fræðslunefnd / 11. janúar 2023
Bæjarráð / 11. janúar 2023
Bæjarstjórn / 11. janúar 2023
Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023
Bæjarstjórn / 28. desember 2022
Öldungaráð / 21. desember 2022
Bæjarráð / 21. desember 2022
Skipulagsnefnd / 20. desember 2022
Fræðslunefnd / 19. desember 2022
Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. desember 2022