Fjarðabyggð
Íþrótta- og tómstundanefnd - 115
**1. 2303428 - Vallavinnusamningur 2023-2025**
|Formenn KFA og FHL mættu á fund með íþrótta- og tómstundanefnd til að ræða um framtíð vallarvinnusamnings Fjarðabyggðar við meistaraflokka knattspyrnunnar. |
Nefndin óskar eftir að deildarstjóri vinni þetta áfram hratt og boði til annars fundar með nefndinni miðvikudaginn 5.4.2023 klukkan 16:15
**2. 2301084 - Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2023**
|Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar yfirfarin og samþykkt. |
**3. 2303407 - Breyting á verðskrá vegna gufubaðsklúbba í sundlaugum Fjarðabyggðar**
|Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir þessa breytingar að allir klúbbar borgi 8.000 hvert skipti óháð tíma. Nefndin vísar til bæjarráðs til samþykktar. |
**4. 2303410 - Aflraunamótið Víkingurinn**
|Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir beiðni Aflraunamótsins Víkingsins um styrk uppá 150.000 krónur.|
**5. 2303418 - Stuðningur við nemendur í einkaþjálfun í líkamsræktum Fjarðabyggðar**
|Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir beiðni þess efnis að nemendur sem eru að læra einkaþjálfun fái stuðning Fjarðabyggðar í formi skiptakorti til að sinna náminu sínu. |
**6. 2109174 - Barnvænt sveitarfélag 2021-2022**
|Niðurstöður ungmennaráðs kynntar fyrir íþrótta- og tómstundanefnd. |