Húnaþing vestra
Veituráð - 41. fundur
41. fundur Veituráðs haldinn þriðjudaginn 4. apríl 2023 kl. 16:00 í fundarsal Ráðhússins.
Fundarmenn
Gunnar Þorgeirsson formaður, Gunnar Örn Jakobsson varaformaður og Ármann Pétursson aðalmaður.
Starfsmenn
Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir.
**Afgreiðslur: **
-
** ** **Drög að reglum um lokastyrki til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli í Húnaþingi vestra 2023.** Áður á dagskrá á 40. fundi ráðsins þann 14. febrúar sl. þar sem sveitarstjóra var falið að gera drög að úthlutunarreglum. Til ráðstöfunar eru 8 milljónir til verkefna í dreifbýli sem uppfylla skilyrði sem gerð voru í verkefninu Ísland ljóstengt. Veituráð samþykkir framlagðar úthlutunarreglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
-
** ** **Lagning vatnslagnar frá Hvammstanga til Laugarbakka, staða verks. **Sveitarstjóri fór yfir stöðu verkefnisins. Byggðarráð ákvað á 1172. fundi sínum sem fram fór 3. apríl sl. að lögð yrði 160 mm. lögn og tók tilboði Set ehf. í lagnaefni.
-
** ** **Gjaldskrá vegna blæðinga hitaveituvatns.** Sveitarstjóra falið að afla upplýsinga um gjaldtöku annarra hitaveitna fyrir notkun á blæðingu hitaveituvatns og leggja fram drög að viðbót við gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra fyrir slíka nýtingu.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:48.