Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
788. stjórnarfundur SSS 12. apríl 2023
= 788. stjórnarfundur SSS 12. apríl 2023 =
Prenta
Árið 2023, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 12. apríl, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Friðjón Einarsson, Anton Kristinn Guðmundsson, Björn G. Sæbjörnsson, Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
hans.
Friðjón Einarsson formaður stjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
Dagskrá:
Ársreikningur S.S.S. 2022 – gestur Kristján Ragnarsson, Deloitte.
Ársreikningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir árið 2022 er gerður í samræmi við lög um ársreikninga.
Tap félagsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi nam 8.691.133 en eignir félagins í árslok samkvæmt efnahagsreikningi námu 367.083.681,-.Bókfært eiginfjárhlutfall félagsins í árslok er neikvætt um kr. 3.340.702,- Rekstrartap ársins er tilkomið vegna hækkunar á lífeyrissjóðsskuldbindingu en hún hækkaði um kr. 15.830.881,- á árinu.
Stjórn og framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum staðfesta ársreikning félagsins með undirritun sinni.
Formanni og framkvæmdastjóra falið að rita Innviðaráðherra bréf vegna 93,6 m.kr. skuldar almenningssamgangna við S.S.S.
Staðfesting á greiðslu halla H.E.S.
a) Bréf frá Reykjanesbæ, dags. 23.02.2023.
b) Tölvupóstur frá Grindavíkurbæ, dags. 22.02.2023.
c) Bréf frá Suðurnesjabæ, dags. 30.03.2023.
d) Tölvupóstur frá Sveitarfélaginu Vogum, dags. 11.04.2023
Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Grindavíkurbær og Sveitarfélagið Vogar hafa staðfest greiðslu á uppsöfnuðum halla Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja á næstu tveimur árum. Framkvæmdastjóra falið að færa þetta inn í fjárhagsáætlun 2024 og 2025.
Fundarferð forsætisráðherra um landið, tölvupóstur frá verkefnastjóra fyrir
Sjálfbært Ísland dags. 21.03.2023.
Lagt fram.
Kjör í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands, tölvupóstur
dags. 28.03.2023.
Stjórn S.S.S. tilnefnir Friðjón Einarsson sem aðalmann og Halldóru Fríðu
Þorvaldsdóttur til vara.
Fundargerð Vetrarfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2023, dags.
17.03.2023.
Lagt fram.
Fundargerð Heklunnar nr. 92, dags. 10.03.2023.
Lagt fram.
Fundargerð Þekkingarseturs Suðurnesja nr. 46, dags. 16.03.2023.
Lagt fram.
European Geopark Networks ráðstefna 2024 – umsókn frá Reykjanes Geopark.
Reykjanes Jarðvangur sóttu um að halda European Geopark Networks árið 2024. Á fundi netverks Evrópskra Jarðvanga sem haldin var í Rúmeníu í mars
s.l. var kosið á milli umsókna um ráðstefnuna. Auk Reykjanes Jarðvangs
skiluðu Finnland, Danmörk og Grikkland inn umsókn. Reykjanes Jarðvangur
hlaut yfirburða kosningu og verður ráðstefnan því haldin á Reykjanesi í
október 2024. Gert er ráð fyrir því að 400-600 manns sæki ráðstefnuna.
Á næstu vikum mun Reykjanes Jarðvangur hefja undirbúning í samstarfi við
Iceland Travel, þannig að hægt verði að kynna ráðstefnuna gróflega í haust á
alþjóðlegri ráðstefnu UNESCO hnattrænna jarðvanga í Marrakesh. Áætlað er
að ráðstefnan 2024 standi yfir í tvo virka daga og í kringum hana verða ferðir,
viðburðir og uppákomur og mögulega einhverjir auka fundir.
Stjórn S.S.S. fagnar því að verkefni sem þetta hafi orðið að veruleika en það er
m.a. afrakstur af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurnesja, er sneri að
ráðstefnum á Reykjanesi. Stjórn S.S.S. þakkar framkvæmdastjóra og starfsfólki
fyrir vel unnið verkefni.
Fundargerð formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtakanna, dags.
30.03.2023.
Lögð fram.
Önnur mál.
Viðgerð á þaki Skógarbraut 945
Stjórn S.S.S. veitir framkvæmdastjóra heimild til þess að taka tilboði í
endurnýjun á þaki Skógarbrautar 945. Jafnframt er framkvæmdastjóra veitt
heimild til þess að færa kr. 7.452.438,- á milli liðanna nefndarlaun og viðhalds.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50.