Fjarðabyggð
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 23
**1. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar**
|Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Kynning frá formanni Skógræktarfélags Reyðarfjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra teikningu og samning og leggja fyrir að nýju. |
**2. 2304049 - Strandgata 98B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Strandgata 98B, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.|
**3. 2304056 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Smiðjustígur 4**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Smiðjustíg 4, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.|
**4. 2304045 - Umsókn um lóð Litlagerði 6**
|Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Litlagerði 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Nefndin áréttar að samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir húsi á einni hæð á lóðinni.|
**5. 2304051 - Framkvæmdaleyfi Fell skógrækt**
|Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal að undanskyldu svæði neðan vegar, PT 12-17, vegna skilmála landnotkunarflokks um landbúnaðarsvæði: Skógrækt er þó ekki heimil á góðu akuryrkjulandi, nema um skjólbelti sé að ræða, í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. |
**6. 2304061 - Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK**
|Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fella byggingarleyfi er varðar hljóðmön við Hafnargötu 36 úr gildi og fara með málið grenndarkynningu. |
**7. 2304069 - Númerslausir bílar 2023**
|Kynning á verkefni er snýr að númerslausum bílum í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.|
**8. 2303368 - Deiliskipulag Nes- og Bakkagil**
|Framlagt tilboð frá Landmótun ehf. vegna vinnu við nýtt deiliskipulag að Nes- og Bakkagili Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagt tilboð og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fylgja málinu fast eftir.|
**9. 2304097 - Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði**
|Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við bæjarverkstjóra.|
**10. 2208107 - Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt**
|Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Eyri, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. |
**11. 2304103 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 13**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melagötu 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.|