Fjarðabyggð
Bæjarráð - 795
**1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL**
|Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur og fjáfestingar Fjarðabyggðar fyrir janúar - febrúar 2023 og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - mars 2023.|
Framlagt og kynnt.
**2. 2303238 - Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023**
|Fulltrúar Deloitte kynntu tillögur sínar um framkvæmd stöðuúttektar.|
Bæjarráð samþykkir að leita samninga við Deloitte um gerð stöðuúttektar. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi og undirrita.
| |
__Gestir__
|Fulltrúar frá Deloitte tóku þátt í fundi á fjarfundi - 00:00|
**3. 2304074 - World Hydrogen Summit 2023**
|Atvinnu- og þróunarstjóri leggur til kynningar minnisblað vegna ráðstefnunnar World Hydrogen Summit sem haldin er ár hvert í Rotterdam daganna 9. til 11. maí.|
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
**4. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira**
|Framlagt minnisblað varðandi fyrirkomulag og kostnað við uppsetningu og rekstur grendarstöðva í Fjarðabyggð.|
Bæjarráð samþykkir að vísa opnun grenndarstöðva í Fjarðabyggð til fjárhagáætlunargerðar 2024. Fyrirkomulag þjónustu mótttökustöða á árinu 2023 verði endurskoðað með tilliti til þarfa fyrir lágmarksopnun til að þjónusta einstaklinga. Tillögur sem samþykktar voru fyrir 22. febrúar 2023 verði að öðru leyti útfærðar og komið í framkvæmd. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og mannvirkja- og veitunefndar til útfærslu.
**5. 2304065 - Fjarskipatasamband í fólkvang Neskaupstaðar**
|Framlagt bréf Björgunarsveitarinnar Gerpis um fjarskipatasamband í fólkvanginum í Neskaupstað.|
Bæjarráð felur bæjarritara að ræða við fjarskiptafyrirtæki og leggja áherslu á öryggisþátt svæðissins.
[Fjarskipatasamband í fólkvang Neskaupstaðar.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=tOIaK4MkSUwBQ4fokhjw1&meetingid=nvytmSZNOEGIIaGt6Gw10A1
&filename=Fjarskipatasamband í fólkvang Neskaupstaðar.pdf)
**6. 2303034 - Drög að reglum um stuðningsþjónustu**
|Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að endurskoðun á reglum fyrir stuðningsþjónustu.|
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
[Minnisblað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=iySQ8xql0Kl98cB4pWnIg&meetingid=nvytmSZNOEGIIaGt6Gw10A1
&filename=Minnisblað.pdf)
**7. 2304053 - Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21.apríl 2023**
|Framlagt fundarboð aukaaðalfundar samtaka orkusveitarfélaga 2023.|
Bæjarráð felur Ragnari Sigurðssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aukaaðalfundinum.
[Dagskrá aukaaðalfundar 2023.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=saYAClowzUC5ejozD3msvw&meetingid=nvytmSZNOEGIIaGt6Gw10A1
&filename=Dagskrá aukaaðalfundar 2023.pdf)
[Fundargögn vegna aukaaðalfundar kynning starfsnefndar apríl 2023.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=v0Vt8GkWdUyj_XTFYFj0vA&meetingid=nvytmSZNOEGIIaGt6Gw10A1
&filename=Fundargögn vegna aukaaðalfundar kynning starfsnefndar apríl 2023.pdf)
**8. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023**
|Fundargerð 921. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.|
[stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 921.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=lFOid2dd7Un1QRL3RsMGQ&meetingid=nvytmSZNOEGIIaGt6Gw10A1
&filename=stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 921.pdf)
**9. 2303021F - Félagsmálanefnd - 164**
|Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 11. apríl til afgreiðslu.|
**9.1. 2303034 - Drög að reglum um stuðningsþjónustu** **Niðurstaða þessa fundar**
Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 11. apríl til afgreiðslu.
**9.2. 2304021 - Memaxi samskipta- og skipulagslausn** **Niðurstaða þessa fundar**
Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 11. apríl til afgreiðslu.
**9.3. 2301106 - Búsetuúrræði-Trúnaðarmál** **Niðurstaða þessa fundar**
Framlögð fundargerð félagsmálanefndar frá 11. apríl til afgreiðslu.