Skorradalshreppur
Hreppsnefnd - 166. fundur
=== Hreppsnefnd Skorradalshrepps ===
Fundur nr. 166
==== föstudaginn 20. maí 2022 kl.16:00, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson, Sigrún Guttormsdóttir Þormar og Ástríður Guðmundsdóttir. ====
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
**Þetta gerðist:** **Almenn mál** **1. Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir árið 2021 – Mál nr. 2205003**
Lagður fram til fyrri umræðu.
Samþykkt að vísa ársreikningi til seinni umræðu.
**2. Hreinsun á inntakslóni, framkvæmdaleyfi – Mál nr. 1704004**
Erindi barst frá Lögreglustjóranum á Vesturlandi, dags. 12. maí 2022, vegna lögreglumáls nr. 313-2017-13291.
Lagt fram. Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
**3. Birkimói 2, 4 og 6 – Mál nr. 1706004**
Borist hafa tvær lóðaumsóknir í Birkimóa 4
Önnur dagsett 1. apríl og hin dagsett 10. apríl
Samþykkt að veita Kolbrá Höskuldsdóttur, dagsetning umsóknar 1. apríl lóðina að Birkimóa 4.
**4. Vegna refa og minkaveiða. – Mál nr. 2205004**
Bréf frá Birgi Haukssyni.
Erindinu vísað til næstu sveitarstjórnar.
**5. Erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga. – Mál nr. 2205005**
Tillaga um stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar á landsbyggðinni með öðrum sveitarfélögum.
Samþykkt að taka þátt í stofnun félagsins.
**6. Aðgangur að örnefnum af sveitarfélaginu. – Mál nr. 1202023**
Lagt fram tilboð frá Sigurgeiri Skúlasyni, landfræðingi, er varðar að koma örnefnum yfir á shp.form þannig að hægt verði að afhenda gögnin til Landmælinga Íslands. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að Sigurgeir verði fengin til að ljúka verkefninu til afhendingar Landmælinga Íslands og hreppsins.
Samþykkt
**7. Framlag til byggingar laugarhús Hreppslaugar. – Mál nr. 2007003**
Lagður fram undirritaður lóðarleigusamningur vegna lóðar vegna laugarhús Hreppslaugar. Skorradalshreppur fer með 40% eignarhluta í nýja laugarhúsinu.
Lóðarleigusamningur samþykktur.
Hreppsnefnd fór síðan í vettfangsferð í lok fundar til að skoða nýtt laugarhús.
**8. Fundur stjórnar Faxaflóahafna nr. 219 – Mál nr. 2205006**
Lögð fram.
**9. Fundargerðir nr. 907 – 909 stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga. – Mál nr. 2205007**
Lagðar fram
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 18:30.