Vopnafjarðarhreppur

Hreppsráð - 8

02.03.2023 - Slóð - Skjáskot

    == Fundur nr. 8 ==

Kjörtímabilið 2022—2026 Kjörtímabilið 2022—2026 Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00 Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð AÓS Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður AÖS Axel Örn SveinbjörnssonNefndarmaður BA Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður BK Baldur KjartanssonFjármálastjóri SES Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps þann 2. mars 2023 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00. Fyrir liggur minnisblað og uppfærð kostnaðaráætlun frá Vegagerðinni vegna lengingar á löndunarbryggju. Kostnaður vegna lengingarinnar er áætlaður 778 mkr (m/vsk) og er hlutur Vopnafjarðarhrepps 311 mkr (m/vsk.) sem dreifist á þrjú ár, 2023-2025. Árlegur heimahluti (m.vsk) framkvæmda er áætlaður 311 mkr sem dreifist: •2023: 160 mkr (129 mkr án vsk.) •2024: 63 mkr (51 mkr án vsk) •2025: 88 mkr (71 mkr án vsk) Að öðru leyti er erindinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024. Samþykkt samhljóða. Lagt fram uppfært erindi frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 12.desember 2022, þar sem styrkumsókn vegna gangnakofans Geldings er vísað til afgreiðslu í hreppsráði. Fyrir fundinum liggja uppfærð gögn vegna erindisins, framkvæmdaáætlun og myndir af gangnakofanum í dag. Hreppsráð samþykkir að styrkja framkvæmdina og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi. Samþykkt samhljóða. Staðan á stjórnendamælaborðinu lögð fram til kynningar. Lagt fram til kynningar. Lagt fram til kynningar. Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 08:49.

Framleitt af pallih fyrir gogn.in