Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 5
== Fundur nr. 5 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
AÖS
Axel Örn SveinbjörnssonNefndarmaður
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps þann 1. desember 2022 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00.
Hreppsráð samþykkir að fela Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Sambandi íslenskra sveitarfélaga umboð til samningagerðar við SÍ um þjónustu í dagdvöl sveitarfélagsins og felur sveitarstjóra að afgreiða erindið.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram erindi frá hestamannafélaginu Glófaxa varðandi aðstöðu hestamannafélagsins á Vopnafirði.
Samþykkt samhljóða.
Lögð fram styrktarbeiðni frá Stígamótum.
Hreppsráð samþykkir að styrkja Stígamót um 50 þúsund krónur.
Samþykkt samhljóða.
Lögð fram styrktarbeiðni frá félagi heyrnarlausra.
Hreppsráð samþykkir að styrkja félag heyrnarlausra um 50 þúsund krónur.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til erindi frá ADHD samtökunum, dagsett 15.nóvember, varðandi samstarf við sveitarfélagið um aukna fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu, um ADHD og fyrir fólk með ADHD.
Hreppsráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Magna lögmönnum, dagsett 2.nóvember 2022 varðandi sölu á jörð sem er í eigu Alexandersjóðs.
Lögð fram til kynningar stefna um viðbragðsáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi hjá sveitarfélaginu.
Hreppsráð samþykkir fyrir sitt leyti drögin og felur sveitarstjóra að gefa út stefnuna og kynna fyrir starfsfólki.
Samþykkt samhljóða.
Drög að gjaldskrám ársins 2023 lagðar fram. Hreppsráð samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrár Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2023 sem taka gildi 1.janúar 2023 og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt með tveimur atkvæðum. Bjartur Aðalbjörnsson situr hjá.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:06.