Vopnafjarðarhreppur
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 3
== Fundur nr. 3 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 09:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
HH
Höskuldur HaraldssonNefndarmaður
BDS
Bylgja Dögg SigurbjörnsdóttirNefndarmaður
ÁI
Ásmundur IngjaldssonNefndarmaður
KÓP
Kristrún Ósk PálsdóttirNefndarmaður
SK
Sandra KonráðsdóttirNefndarmaður
AKÁ
Agnar Karl ÁrnasonNefndarmaður
SJ
Sigurður JónssonSkipulags- og byggingarfulltrúi
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps 18.10 2022 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 09:00.
Framlögð uppfærð tillaga að fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélög á starfssvæði Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Hugmynd um tjaldsvæði við Merkistún var vísað til umræðu í fagráðum sveitarfélagsins á síðasta fundi sveitarstjórnar þann 22.september. Umhverfis – og framkvæmdaráð fagnar því að vinna sé hafin við hugmyndir að nýju tjaldsvæði en bendir á að svæðið við Merkistún er í dag skilgreint sem frístundabyggð í gildandi aðalskipulagi og það verður hægt að fara í framkvæmdina þegar nýtt aðalskipulag hefur tekið gildi. Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur einnig til að útfærð verði kostnaðaráætlun hvað varðar nýtt tjaldsvæði.
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lögð fram til kynningar staða framkvæmda sveitarfélagsins 2022.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Yrki arkitektum um lóðarmörk í Holtahverfi.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til skipulags- og byggingarfulltrúa og skipulagsráðgjafa.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Náttúrustofu Austurlands vegna mats á áhrifum hækkaðrar vatnsstöðu í Arnarvatni á Vopnafjarðarheiði á bakka og gróður. Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við minnisblaðið en fagnar því að málin séu komin í réttan farveg og vísar minnisblaðinu til kynningar í sveitarstjórn.
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lagt fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:02.