Suðurnesjabær
Framkvæmda- og skipulagsráð
= Framkvæmda- og skipulagsráð =
Dagskrá
Bergný Jóna Sævarsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs var gestur fundarins í máli nr. 1. Þorgeir Margeirsson og Sigurður Viðar Heimisson voru gestir fundarins í máli nr. 2.
=== 1.Reglur um búfjárhald í Suðurnesjabæ ===
2011032
Reglur um búfjárhald í Suðurnesjabæ lagðar fram til afgreiðslu
Ráðið leggur til að bæjarstjórn samþykki að vísa Samþykkt um búfjárhald til Matvælaráðuneytisins til staðfestingar.
=== 2.Strandgata 10, viðbygging - umsókn um byggingarleyfi, umfangsflokkur 1 ===
2302064
Mál áður á dagskrá á 43. fundi ráðsins. Umsækjandi leggur fram breytta uppdrætti með erindinu.
Samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
=== 3.Sprengjueyðingarsvæði Landhelgisgæslunnar vestan Keflavíkurflugvallar - Beiðni um umsögn ===
2304047
Greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna fyrirhugaðs svæðis lögð fram til umsagnar
Ráðið telur að í skýrslu Verkís vegna fyrirspurnar um matsskyldu til Skipulagsstofnunar sé gerð nægjanleg grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisáhrifum og vöktun og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bent er á að framkvæmdin er háð framkvæmdarleyfi Suðurnesjabæjar.
=== 4.Umsókn um stöðuleyfi - Aðstaða fyrir farþegaakstur á flughlaði ===
2304024
Isavia sækir um stöðuleyfi fyrir tímabundna aðstöðu farþegabílstjóra skv. meðfylgjandi gögnum.
Ráðið samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs. Jákvæð umsögn Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar liggur fyrir.
=== 5.Suðurnesjabær - Umhverfismál ===
2302086
Umhverfisfulltrúi leggur fram gögn til kynningar og umræðu um nokkur umhverfismál í sveitarfélaginu.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:15.