Grindavíkurbær
Fræðslunefnd - Fundur 130
**130. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 17. apríl 2023 og hófst hann kl. 16:30.**
Fundinn sátu:
Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson, formaður,
Eva Lind Matthíasdóttir, varaformaður,
Eva Rún Barðadóttir, aðalmaður,
Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður,
Snædís Ósk Guðjónsdóttir, aðalmaður.
Einnig sátu fundinn:
Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri,
Inga Þórðardóttir, skólastjóri,
Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri,
Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri,
Herdís Gunnlaugsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskóla,
Fundargerð ritaði: Jóhanna Lilja Birgisdóttir, Deildarstjóri skólaþjónustu
Dagskrá:
**1. Skóladagatal Grunnskóla Grindavíkur skólaárið 2023-2024 - 2302112**
Skólastjóri grunnskóla sat undir þessum lið.
Eysteinn Þór Kristinsson skólastjóri grunnskólans leggur fram skóladagatal skólaársins 2023 - 2024. Fræðslunefnd frestar afgreiðslu málsins.
**2. Áhyggjur af stöðu skólahjúkrunar - 2304008**
Skólastjóri grunnskóla sat undir þessum lið.
Fræðslunefnd lýsir yfir áhyggjum af stöðu skólahjúkrunar í Grunnskóla Grindavíkur. Það er áhyggjuefni að ekki hefur tekist að ráða í auglýstar stöður. Fræðslunefnd undirstrikar mikilvægi þeirrar lögbundnu þjónustu sem skólaheilsugæslan sinnir í Grunnskóla Grindavíkur. Nefndin óskar eftir að bæjarráð sendi erindi til framkvæmdarstjórnar HSS.
**3. Breyting á skóladagatali 2022-2023 - 2304037**
Skólastjóri grunnskóla sat undir þessum lið.
Fræðslunefnd samþykkir framlagða breytingu á skóladagatali Grunnskóla Grindavíkur skólaárið 2022-2023 og felur skólastjóra að kynna hana fyrir forráðamönnum hið fyrsta.
**4. Læsisstefna Grindavíkurbæjar - 2304015**
Stjórnendur leikskóla-, grunnskóla og tónlistarskóla ásamt áheyrnarfulltrúa leikskóla sátu undir þessum lið.
Umræða um heildræna endurskoðun á læsisstefnu Grindavíkurbæjar.
**5. Biðlistar í leikskólum og nemendafjöldi í skólum. - 1601010**
Stjórnendur leikskóla ásamt áheyrnarfulltrúa starfsmanna sátu undir þessum lið.
Lagt fram minnisblað leikskólaráðgjafa um fjölda barna á biðlista eftir leikskólaplássi ásamt tillögu skólastjórnenda um fjölda barna í hvorum skóla skólaárið 2023-2024. Heilsuleikskólinn Krókur verður með 106 börn og Leikskólinn Laut með 88 börn. Í ágúst verða öll börn 18 mánaða og eldri komin með leikskólapláss miðað við biðlistann í dag.
**6. Sumarlokun leikskóla Grindavíkurbæjar - 2212026**
Stjórnendur leikskóla ásamt áheyrnarfulltrúa starfsmanna sátu undir þessum lið.
Umræða um tillögu að stytta sumarlokun leikskólans Lautar úr 5 vikum í 4 og samræma þannig sumarlokun Lautar og Króks. Fræðslunefnd vinnur málið áfram.
**7. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara - 2109132**
Stjórnendur leikskóla ásamt áheyrnarfulltrúa starfsmanna sátu undir þessum lið.
Umræða um opnun leikskólanna milli jóla og nýárs og mætingu barna á þeim tíma, í tengslum við vinnu um bætt starfsumhverfi leikskóla. Fræðslunefnd mun skoða nánar útfærslu á starfsumhverfi leikskólanna.
**8. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín - 2302005**
Stjórnendur leikskóla ásamt áheyrnarfulltrúa starfsmanna sátu undir þessum lið.
Nefndin leggur til að foreldrar barna sem náð hafa 12 mánaða aldri geti sótt um heimgreiðslur sem nemur ekki hærri fjárhæð heldur en niðurgreiðsla með börnum hjá dagforeldri. Með þessu er komið til móts við óskir foreldra um fleiri leiðir til að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til barn byrjar í leikskóla. Nefndin telur mikilvægt að skilyrða greiðsluna þannig að fyrir liggi að réttur til fæðingarorlofs sé fullnýttur og barnið sé á biðlista eftir leikskólaplássi í Grindavíkurbæ.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.
Fræðslunefnd / 17. apríl 2023
[Fundur 130](/v/26387)
Bæjarstjórn / 25. apríl 2023
[Fundur 540 ](/v/26378)
Bæjarráð / 18. apríl 2023
[Fundur 1641](/v/26371)
Skipulagsnefnd / 3. apríl 2023
[Fundur 118](/v/26358)
Fræðslunefnd / 2. mars 2023
[Fundur 129](/v/26356)
Bæjarráð / 4. apríl 2023
[Fundur 1640](/v/26355)
Bæjarstjórn / 29. mars 2023
[Fundur 539](/v/26340)
Bæjarráð / 22. mars 2023
[Fundur 1639](/v/26326)
Skipulagsnefnd / 22. mars 2023
[Fundur 117](/v/26325)
Bæjarráð / 22. mars 2023
[Fundur 1638](/v/26324)
Frístunda- og menningarnefnd / 9. mars 2023
[Fundur 124](/v/26303)
Bæjarráð / 8. mars 2023
[Fundur 1637](/v/26300)
Bæjarstjórn / 1. mars 2023
[Fundur 538](/v/26284)
Fræðslunefnd / 27. febrúar 2023
[Fundur 128](/v/26282)
Bæjarráð / 23. febrúar 2023
[Fundur 1636](/v/26277)
Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023
[Fundur 115](/v/26273)
Bæjarráð / 15. febrúar 2023
[Fundur 1635](/v/26264)
Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023
[Fundur 114](/v/26255)
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
[Fundur 1634](/v/26251)
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
[Fundur 123](/v/26242)
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
[Fundur 537](/v/26240)
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
[Fundur 113](/v/26234)
Bæjarráð / 18. janúar 2023
[Fundur 1633](/v/26217)
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
[Fundur 122](/v/26211)
Fræðslunefnd / 11. janúar 2023
[Fundur 126](/v/26210)
Bæjarráð / 11. janúar 2023
[Fundur 1632](/v/26209)
Bæjarstjórn / 11. janúar 2023
[Fundur 536](/v/26208)