Fjarðabyggð
Bæjarráð - 797
**1. 2301106 - Búsetuúrræði-Trúnaðarmál**
|Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Fjarðabyggð.|
Bæjarráð samþykkir að unnið verði áfram að málinu á grundvelli minnisblaðs.
**2. 2303238 - Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023**
|Framlögð drög að ráðningabréfi Deloitte vegna stöðuúttektar á stjórnsýslu Fjarðabyggðar.|
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
**3. 2304306 - Vegna kæru á hljóðmön - krafa um endurgreiðslu málskostnaðar.**
|Framlagt bréf vegna kröfu um endurgreiðslu málskostnaðar.|
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
**4. 2103191 - Málefni brothættra byggða**
|Verkefnastjóri brothættra byggða fór yfir verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður.|
| |
__Gestir__
|Valbjörg Ösp Árnadóttir Waren - 00:00|
**5. 2304207 - Suðurlandsvegur við Breiðamerkurlón**
|Framlagt til kynningar erindi Guðmundar G. Norðdhal vegna Suðurlandsvegar við Breiðamerkurlón|
**6. 2304217 - Erindi vegna stöðu skjalasafns Norðfjarðar**
|Framlagt til kynningar erindi Áslaugar Lárusdóttur vegna Skjalasafns Norðfjarðar.|
Á fjárfestingaráætlun ársins er gert ráð fyrir lokaáfanga byggingar skjalasafnsins að Þiljuvöllum á Norðfirði og hillir undir flutning skjalasafnsins í varanlegt húsnæði.
Vísað til stjórnar Menningarstofu og Safnastofnunar.
**7. 2304247 - Aðalfundarboð 2023 - Olíusamlagið**
|Framlagt fundarboð vegna aðalfundar Olíusamlags Útvegsmanna í Neskaupstað sem haldinn er 5. maí.|
Bæjarráð samþykkir að fela Stefáni Þór Eysteinssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
**8. 2304258 - Til umsagnar 945. mál um kosningalög frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis**
|Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sent til umsagnar frumvarp til laga um kosningalög o.fl., 945. mál. Umsagnarfrestur er til 10. maí nk.|
Vísað til formanns yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar.
**9. 2108027 - Þróun hafnarsvæða**
|Framlagt sem trúnaðarmál.|
**10. 2302095 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2023**
|Framlagðar til staðfestingar 3 umsóknir Fjarðabyggðar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stofnframlög f.h. Brákar íbúðafélags hses vegna byggingar 12 íbúða á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Jafnframt er lagt til að Fjarðabyggð samþykki veitingu stofnframlaganna í samræmi við minnisblað.|
Bæjarráð samþykkir að veita umbeðið stofnframlag og umsókn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
**11. 2304053 - Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21.apríl 2023**
|Fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar.|
**12. 2304286 - Skólavegur 70A Fáskrúðsfirði - sala lóðarréttinda**
|Framlögð beiðni frá Minjavernd um heimild til að selja lóðarréttindi vegna Skólavegar 70A og gerð nýs lóðarleigusamnings.|
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
**13. 2011203 - Stjórnkerfisnefnd 2020-2023**
|Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd tekur til umfjöllunar tillögur bæjarstjóra að breytingum á stjórnsýslu sveitarfélagsins. |
Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarstjóra og felur honum úrvinnslu tillögunnar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
**14. 2304288 - Ráðning sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs**
|Framlögð tillaga bæjarstjóra um starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.|
Bæjarstjóri leggur til að Svani Frey Árnasyni verði falið starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs til eins árs.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.
**15. 2304231 - Viðauki um samning um kaup á malbikunarþjónustu**
|Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd sem trúnaðarmáli viðauka við samning um malbikunarstöð frá 25.2.2020 vegna efnistöku í Reyðarfirði.|
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
**16. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026**
|Framlögð minnisblöð upplýsingafulltrúa varðandi stefnu innri samskipta og samskipta-og vefstefnu Fjarðabyggðar.|
Bæjarráð samþykkir stefnur fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar. Stefnur verði settar til árs til að byrja með og endurskoðaðar að þeim tíma liðnum.
**17. 2304304 - Yfirtaka á gjafasjóðum vegna Hulduhlíðar**
|Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllu og afgreiðslu dagskrárliðar.|
Framlagður tölvupóstur frá Góðvinum Hulduhlíðar þar sem óskað er eftir að félagið yfirtaki gjafasjóði Hulduhlíðar sem eru í fórum Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að afhenda sjóðina Góðvinum Hulduhlíðar til ráðstöfunar.
**18. 2304305 - Fundagerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands 2023**
|Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.|