Akraneskaupstaður
Velferðar- og mannréttindaráð 203. fundur
[s. 433 1000](tel:4331000) [Vefir Akraneskaupstaðar](#)
= Velferðar- og mannréttindaráð =
Dagskrá
=== 1.Endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð ===
2302013
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð hjá Akraneskaupstað lagðar fram.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir drög að reglum um fjárhagsaðstoð og vísar til afgreiðslu í bæjarráði.
=== 2.Samningur um akstur á heimsendum mat ===
2104184
Gildandi samningi um akstur á heimsendum mat hefur verið sagt upp og sætir endurskoðun. Tillögur að útfræslu lagðar fram ásamt viðauka og áhrifum kostnaðaraukningar.
Velferðar- og mannréttindaráð fjallar um framlögð gögn vegna uppsagnar á samningi um akstur með heimsendan mat, frá og með 1. ágúst nk. Á grundvelli framlagðrar kostnaðargreiningar, á þeim leiðum sem færar eru. Felur velferðar- og mannréttindaráð sviðsstjóra að gera verðkönnun/tilboða og leggja fram á næsta fundi.
=== 3.Fundargerðir 2023 - notendaráð um málefni fatlaðs fólks ===
2301023
Fundargerðir notendaráðs: 15. fundur, 16. janúar 2023 og 16. fundur, 27. apríl 2023. Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir notendaráðs um málefni fatlaðs fólks lagðar fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:00.