Seltjarnarnesbær
314. fundur umhverfisnefndar
Austurströnd 2
170 Seltjarnarnes
postur [hjá] seltjarnarnes.is
**Sími**
595 9100
Fax: 595 9101
**Afgreiðslutími**
- Mánudaga-fimmtudaga 8-16
- Föstudaga 8-13
Neyðarsími bæjarins og veitna utan skrifstofutíma
822 9150
Stjórnsýsla
Hér er að finna fundargerðir umhverfisnefndar frá þessu ári, raðað í tímaröð. Fundargerðir annarra ára er raðað eftir ártölum í hægri dálki: "Leitað eftir árum"
Umhverfisnefnd
**314. fundur umhverfisnefndar haldinn þann 30. júní 2022 kl. 08:00-09:32 í sal bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2 Seltjarnarnesi.**
**Nefndarmenn:**
Grétar Dór Sigurðsson, formaður
Hannes Tryggvi Hafstein, aðalmaður
Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir, aðalmaður
Stefán Bergmann, aðalmaður
Magnea Gylfadóttir, aðalmaður
**Starfsmaður:** Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri
**Fundargerð ritaði:** Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri
**Dagskrá:**
**1. 2021080052 - Fyrirspurn um útilistaverk við Hrólfsskálavör 2**
Lagðar fram umsagnir vegna fyrirspurnar um útilistaverk við Hrólfskálavör 2. Málið var áður á dagskrá 309. fundar umhverfisnefndar þar sem nefndin tók jákvætt í erindið en óskaði eftir umsögnum viðeigandi opinberra aðila.
*Umhverfisnefnd felur formanni nefndarinnar að afla frekari upplýsinga um framkvæmdina og áhrif hennar á umhverfið einnig að óska eftir skýringum framkvæmdaraðila á fyrirhuguðu aðgengi almennings að verkinu.*
**2. 2022060127 - Umhverfisviðurkenningar 2022**
Árlega veitir umhverfisnefnd viðurkenningu fyrir aðgerðir í þágu umhverfisins.
*Umhverfisnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að óska eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga 2022.*
**3. 2022060128 - Kríutalning 2022**
Á tveggja ára fresti hefur umhverfisnefnd óskað eftir fuglatalningu á Seltjarnarnesi. Jóhann Óli fuglafræðingur var fenginn til að framkvæma kríutalningu í byrjun júní 2022 og verða niðurstöður kynntar síðar.
**4. Kosning varaformanns**
Hannes Tryggvi Hafstein er kosinn varaformaður með 3 greiddum atkvæðum.
**5. Önnur mál**
Umhverfisnefnd telur að ný og gömul mál á sviði umhverfismála þarfnist frekari úrvinnslu og samstarfs milli nefnda og stjórna innan bæjarkerfisins.
Fundi slitið
Þetta vefsvæði
[byggir á Eplica](http://www.eplica.is/)