Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1642
**1642. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 2. maí 2023 og hófst hann kl. 15:00.**
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
**1. Garðsláttur eldri borgara - 2304041**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Tölvupóstur frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar, dags. 14.04.2023 er lagður fram.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram og leggja tillögur fyrir næsta fund bæjarráðs.
**2. Sorpflokkun við heimili - Borgað þegar hent er, innleiðing - 2304042**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð fram drög að dreifibréfi og kynningu fyrir framlínustarfsfólk. Fyrirhugað er að deila út tvískiptri tunnu á hvert heimili nú í lok maí eða byrjun júní ásamt því að merkja þær tunnur sem fyrir eru. Einnig lögð fram drög að nýrri gjaldskrá.
**3. 50 ára afmælismerki Grindavíkurbæjar - 2304076**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Samkvæmt erindisbréfi skal 50 ára afmælisnefnd láta hanna afmælismerki sem fangar anda kaupstaðarafmælisins.
Lagt er til að skoða ásýnd og hönnunarstaðal fyrir Grindavíkurbæ í leiðinni. Bæjarráð samþykkir tillöguna.
**4. Leiksvæði vestan Víkurbrautar - 2304082**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð fram tillaga um niðursetningu á nýjum ærslabelg.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og sviðstjóra skipulags- og umhverfisviðs er falið að útfæra málið.
**5. Siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar - 2304049**
Lögð fram drög að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar siðareglunum til staðfestingar í bæjarstjórn.
**6. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín - 2302005**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að heimgreiðslur verði í samræmi við bókun fræðslunefndar og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að útbúa reglur í samræmi við það og leggja þær fyrir bæjarráð.
**7. Áhyggjur af stöðu skólahjúkrunar - 2304008**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð fram bókun fræðslunefndar á fundi nr. 130 þann 17. apríl sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við stjórnendur HSS.
**8. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2023 - 2304053**
Boðað er til aðalfundarins þriðjudaginn 9. maí 2023 kl. 14:30.
Bæjarráð samþykkir að Andrea Ævarsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:40.
Bæjarráð / 2. maí 2023
[Fundur 1642](/v/26397)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2023
[Fundur 119](/v/26393)
Frístunda- og menningarnefnd / 3. maí 2023
[Fundur 125](/v/26392)
Fræðslunefnd / 17. apríl 2023
[Fundur 130](/v/26387)
Bæjarstjórn / 25. apríl 2023
[Fundur 540 ](/v/26378)
Bæjarráð / 18. apríl 2023
[Fundur 1641](/v/26371)
Skipulagsnefnd / 3. apríl 2023
[Fundur 118](/v/26358)
Fræðslunefnd / 2. mars 2023
[Fundur 129](/v/26356)
Bæjarráð / 4. apríl 2023
[Fundur 1640](/v/26355)
Bæjarstjórn / 29. mars 2023
[Fundur 539](/v/26340)
Bæjarráð / 22. mars 2023
[Fundur 1639](/v/26326)
Skipulagsnefnd / 22. mars 2023
[Fundur 117](/v/26325)
Bæjarráð / 22. mars 2023
[Fundur 1638](/v/26324)
Frístunda- og menningarnefnd / 9. mars 2023
[Fundur 124](/v/26303)
Bæjarráð / 8. mars 2023
[Fundur 1637](/v/26300)
Bæjarstjórn / 1. mars 2023
[Fundur 538](/v/26284)
Fræðslunefnd / 27. febrúar 2023
[Fundur 128](/v/26282)
Bæjarráð / 23. febrúar 2023
[Fundur 1636](/v/26277)
Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023
[Fundur 115](/v/26273)
Bæjarráð / 15. febrúar 2023
[Fundur 1635](/v/26264)
Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023
[Fundur 114](/v/26255)
Bæjarráð / 8. febrúar 2023
[Fundur 1634](/v/26251)
Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023
[Fundur 123](/v/26242)
Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023
[Fundur 537](/v/26240)
Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023
[Fundur 113](/v/26234)
Bæjarráð / 18. janúar 2023
[Fundur 1633](/v/26217)
Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023
[Fundur 122](/v/26211)