Akraneskaupstaður
Skóla- og frístundaráð 215. fundur
[s. 433 1000](tel:4331000) [Vefir Akraneskaupstaðar](#)
= Skóla- og frístundaráð =
Dagskrá
=== 1.Grundaskóli - starfsemi ===
2305002
Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla situr fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð þakkar Sigurði Arnari Sigurðssyni fyrir móttökurnar og góða kynningu á starfsemi Grundaskóla.
Sigurður Arnar Sigurðsson víkur af fundi.
=== 2.Erindi frá Sundfélagi Akraness ===
2212064
Mat á tilraunarverkefni um lokun sundlaugarinnar á Jaðarsbökkum fyrir almenningi virka daga frá kl. 15:00-17:00. Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja situr fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð frestar afgreiðslu málsins.
=== 3.Opnunartími íþróttamannvirkja ===
2305003
Á fundi skóla- og frístundaráðs 4.janúar s.l. var til umfjöllunar erindi frá bæjarstjórnarfundi ungafólksins um íþróttalíf á Akranesi sem tók m.a. til opnunartíma íþróttamannvirkja. Daníel Sigurðssyni Glad forstöumanni íþróttamannvirkja var falið að móta tillögur að breytingu á opnunartímum mannvirkjanna sem hann kynnir fyrir ráðinu.
Skóla- og frístundaráð þakkar forstöðumanni íþróttamannvirkja fyrir vel ígrundaðar tillögur varðandi breytingar á opnunartímum. Ráðið mun skoða málið og taka ákvörðun síðar.
=== 4.Heilsuefling eldriborgara - aðgangur að tækjasal ===
2305001
Aðsent erindi með tillögum að aðgerðum til að auka heilsueflingu eldriborgara.
Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir erindið og samþykkir að bjóða eldriborgurum sem kaupa aðgang í sund á milli kl. 13:00-15:00 á virkum dögum frítt í þreksalinn á Jaðarsbökkum.
Daníel Sigurðsson Glad víkur af fundi.
=== 5.Menntastefna- endurnýjun ===
2002069
Kynning á lokaútgáfu Menntastefnu Akraneskaupstaðar.
Lagt fram til kynningar.
=== 6.Fundargerðir 2023 - menningar- og safnanefnd ===
2301006
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:00.