Norðurþing
06.06.2023 - Fjölskylduráð 155. fundur
= Fjölskylduráð =
Dagskrá
=== 1.Reglur um stuðning til náms í menntavísindum ===
202305077
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar endurskoðun reglna um stuðning til náms í menntavísindum.
Fjölskylduráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
=== 2.Starfsreglur leikskóla - Endurskoðun 2023 ===
202306003
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar endurskoðun á starfsreglum leikskóla.
Fjölskylduráð felur fræðslustjóra að skila kostnaðargreiningu vegna umræðu um opnunartíma á næsta fundi ráðsins.
=== 3.Samþætting skóla og frístundastarfs - starfsemi ===
202302039
Fjölskylduráð fjallar áfram um samþættingu skóla og frístundarstarfs.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á íþrótta- og tómstundasviði að boða til fundar með starfshópi verkefnisins og vinna starfsáætlun fyrir næsta ár.
=== 4.Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Norðurþings 2023 ===
202305078
Fyrir fjölskylduráði liggja endurskoðaðar reglur um félagslegt leiguhúsnæði til afgreiðslu.
Fjölskylduráð samþykkir endurskoðaðar reglur um félagslegt leiguhúsnæði og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn.
=== 5.Trúnaðarmál ===
202305125
Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
=== 6.Trúnaðarmál ===
202305126
Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.
=== 7.Sundlaugin í Lundi - rekstur sumarið 2023 ===
202302017
Verkefnastjóri á íþrótta- og tómstundasviði kynnir stöðuna. Búið er að auglýsa eftir rekstraraðilum eða starfsfólki frá því í maí án árangurs. Á meðan enginn fæst að rekstri mannvirkisins er ekki hægt að opna sundlaugina.
Fjölskylduráð harmar stöðuna og sér ekki fram á að hægt verði að halda Sundlauginni í Lundi opinni í sumar.
=== 8.Erindi frá HSÞ vegna rafrænt skráningarkerfi íþróttahreyfingarinnar ===
202306008
HSÞ óskar eftir, fyrir hönd aðildarfélaga HSÞ, að sveitarfélagið Norðurþing greiði hlut sinna félaga í áskrift að Sportabler.
Fjölskylduráð frestar erindinu og felur verkefnastjóra á íþrótta- og tómstundasviði að ræða við HSÞ um erindið.
=== 9.Leikvellir í Norðurþingi ===
202109145
Umfjöllun um leikvelli á Húsavík.
Búið er að panta fallvarnir og leiktæki á leikvöllinn á milli Höfðavegar og Laugarbrekku og verður farið í endurbætur og viðhald á þeim leikvelli í sumar. Ráðið telur mikilvægt að fylgja eftir áætlun um viðhald leikvalla í sveitarfélaginu.
Fundi slitið - kl. 11:45.
Sólveig Ása Arnarsdóttir, verkefnastjóri á íþrótta- og tómstundasviði, sat fundinn undir liðum 3, 7, 8 og 9.
Hróðný Lund, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 4, 5 og 6.
Þórgunnur R. Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, sat fundinn undir lið 1.
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, leikskólastjóri Grænuvalla, Christoph Wöll, staðgengill skólastjóra Öxarfjarðarskóla, Arndís Jóhanna Harðardóttir, fulltrúi starfsfólks, og Sunna Torfadóttir, fulltrúi starfsfólks, sátu fundinn undir liðum 1 og 2.