Skagafjörður
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
= Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa =
Dagskrá
=== 1.Sólheimar 2 L234457 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi. ===
2306117
Þórir Guðmundsson sækir f.h. Axels Kárasonar um leyfi til að byggja íbúðarhús og bílskúr á jörðinni Sólheimum 2. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Teiknistofu Þ. Guðmundssonar af Þóri Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdrættir í verki HA23129, númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 29.05.2023, ásamt uppdráttum númer A-101, og A-102, dagsettum 27.06.2023. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2 skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
=== 2.Laugatún 11 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi. ===
2306310
Þórður Karl Gunnarsson sækir f.h. Jóns Valgeirs Júlíussonar og Steinunnar Rósu Guðmundsdóttur eiganda íbúðar með fasteignanúmerið F2216410, neðri hæð í fjöleignahúsi á lóðinni númer 11 við Laugatún um leyfi fyrir stoðvegg ásamt því að setja hurð á suðurhlið hússins. Framlagður aðaluppdráttur gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Þórði Karli Gunnarssyni. Uppdráttur í verki 79008600, númer A-101, dagsettur 13.06.2023, ásamt afstöðumynd númer S-01, dagsettri 07.07.2023. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
=== 3.Kýrholt 3 L236088 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi. ===
2307039
Atli Gunnar Arnórsson sækir f.h. Stefáns Steinþórssonar um leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni Kýrholt 3. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnar Arnórssyni byggingarverkfræðingi. Uppdrættir í verki 75851001, númer A-100, A-101 og A-102, dagsettir 05.07.2023. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2 skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
Fundi slitið - kl. 09:00.