Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1649
**1649. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 11. júlí 2023 og hófst hann kl. 15:00.**
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 1. mál: 2306071 Fráveita Grindavíkurbæjar - dælustöð við Miðgarð - framkvæmd. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
**1. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælustöð við Miðgarð - framkvæmd - 2306071**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Tilboð í byggingu á dælustöð á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gera samning við lægstbjóðendur.
**2. Hópsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi - 2303092**
Grenndarkynningartíma vegna deiliskipulagstillögu við Hópsveg 1 lauk þann 9. maí sl. Tvær athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til þess að bregðast við þeim athugasemdum sem bárust og felur skipulagsfulltrúa að svara þeim er gerðu athugasemd við skipulagstillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á fundi 122 þann 19. júní sl. og vísar henni til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir deiliskipulagstillöguna og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða hana í samræmi við skipulagslög og felur skipulags- og umhverfissviði að svara erindi lóðarhafa við Sjónarhól.
**3. Sérstakur húsnæðisstuðningur - Breyting á reglum - 2305120**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Drög að breyttum reglum (bótafjárhæðir/tekjutafla) um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins lögð fyrir bæjarráð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kostnaðarmeta þær tillögur sem lagðar voru fram á fundinum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
**4. Samstarf um svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og afbrotum - 2306080**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagt fram bréf frá Ríkislögreglustjóra, dags. 21. júní 2023 þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélögin Grindavík, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga ásamt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum um áframhaldandi þróun á svæðisbundnu samráði gegn ofbeldi og öðrum afbrotum og að gengið verði frá samstarfsyfirlýsingu þess efnis.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu.
**5. Álagning seinni hluta sorpgjalda 2023 - 50 af kostnaði við meðhöndlun sorps - 2306082**
Lögð fram álagning síðari hluta sorpgjalda ársins 2023.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:05.
Bæjarráð / 11. júlí 2023
[Fundur 1649](/v/26561)
Bæjarráð / 27. júní 2023
[Fundur 1648](/v/26536)
Bæjarráð / 20. júní 2023
[Fundur 1647](/v/26522)
Skipulagsnefnd / 19. júní 2023
[Fundur 122](/v/26521)
Frístunda- og menningarnefnd / 14. júní 2023
[Fundur 126](/v/26507)
Bæjarráð / 13. júní 2023
[Fundur 1646](/v/26506)
Bæjarráð / 6. júní 2023
[Fundur 1645](/v/26496)
Skipulagsnefnd / 5. júní 2023
[Fundur 121](/v/26493)
Skipulagsnefnd / 6. mars 2023
[Fundur 116](/v/26472)
Skipulagsnefnd / 15. maí 2023
[Fundur 120](/v/26471)
Bæjarstjórn / 30. maí 2023
[Fundur 541](/v/26462)
Bæjarráð / 23. maí 2023
[Fundur 1644](/v/26448)
Bæjarráð / 16. maí 2023
[Fundur 1643](/v/26431)
Fræðslunefnd / 4. maí 2023
[Fundur 131](/v/26411)
Hafnarstjórn / 8. maí 2023
[Fundur 489](/v/26410)
Bæjarráð / 2. maí 2023
[Fundur 1642](/v/26397)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2023
[Fundur 119](/v/26393)
Frístunda- og menningarnefnd / 3. maí 2023
[Fundur 125](/v/26392)
Fræðslunefnd / 17. apríl 2023
[Fundur 130](/v/26387)
Bæjarstjórn / 25. apríl 2023
[Fundur 540 ](/v/26378)
Bæjarráð / 18. apríl 2023
[Fundur 1641](/v/26371)
Skipulagsnefnd / 3. apríl 2023
[Fundur 118](/v/26358)
Fræðslunefnd / 2. mars 2023
[Fundur 129](/v/26356)
Bæjarráð / 4. apríl 2023
[Fundur 1640](/v/26355)
Bæjarstjórn / 29. mars 2023
[Fundur 539](/v/26340)
Bæjarráð / 22. mars 2023
[Fundur 1639](/v/26326)
Skipulagsnefnd / 22. mars 2023
[Fundur 117](/v/26325)
Bæjarráð / 22. mars 2023
[Fundur 1638](/v/26324)