Grindavíkurbær

Frístunda- og menningarnefnd - Fundur 126

14.06.2023 - Slóð - Skjáskot

    **126. fundur Frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 14. júní 2023 og hófst hann kl. 16:00.**

Fundinn sátu: Sævar Þór Birgisson, varamaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, varaformaður, Þórunn Erlingsdóttir, varamaður, Hulda Kristín Smáradóttir, aðalmaður, Auður Arna Guðfinnsdóttir, aðalmaður. Einnig sátu fundinn: Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Dagskrá: 1. Úttekt á jafnréttismálum í íþrótta- og frístundastarfi í Grindavík - 2212012 Anna Soffía Víkingsdóttir og Sæunn Gísladóttir frá Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu jafnréttisúttekt á íþrótta- og æskulýðsstarfi í Grindavík sem unnin var vorið 2023. Sviðsstjóra falið að kynna skýrsluna þeim aðilum sem standa fyrir íþrótta- og æskulýðsstarfi í Grindavík og kalla eftir úrbótaáætlunum. 2. Sjóarinn síkáti 2023 - 2301013 Sjóarinn síkáti fór fram 2.-4. júní sl. Sviðsstjóri fór yfir framkvæmd hátíðarinnar. Lögð var fram frumniðurstaða úr opinni vefkönnun sem frakvæmd var í kjölfar hátíðarinnar. Frístunda- og menningarnefnd þakkar öllum þeim sem að stóðu að framkvæmd hátíðarinnar og viðburða á meðan henni stóð fyrir sitt framlag. 3. Gestastofa Reykjanes jarðvangs - 2111028 Lagðar fram uppfærðar tillögur hönnunarfyrirtækisins Gagarín að gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni. Stefnt er að því að gestastofan opni almenningi vorið 2024. 4. Undrun - Dyvyna - 2306032 Lagðar fram tillögur að útilistaverki í Grindavík. Nefndin felur sviðsstjóra að kanna nánari útfærslu. 5. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2305109 Lára Lind Jakobsdóttir sækir um starfsstyrk fyrir tónleikum í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. 6. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2305116 Óskar Kristinn Vignisson sækir um starfsstyrk til kvikmyndagerðar í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. 7. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2305123 Listvinafélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk fyrir starfsemi félagsins í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. 8. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2305125 Sóknarnefnd Grindavíkurkirkju sækir um starfsstyrk fyrir kórastarfi í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. 9. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2305100 Einherjar sækja um starfsstyrk í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. 10. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - 2305001 Innsend gögn frá Grindavíkurkirkju vegna starfsstyrks 2023 lögð fram. 11. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - 2305022 Innsend gögn frá Grindavíkurdætrum vegna starfsstyrks 2023 lögð fram. Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30. Sævar Þór Birgisson Irmý Rós Þorsteinsdóttir Þórunn Erlingsdóttir Hulda Kristín Smáradóttir Auður Arna Guðfinnsdóttir Bæjarráð / 11. júlí 2023 Fundur 1649 Bæjarráð / 27. júní 2023 Fundur 1648 Bæjarráð / 20. júní 2023 Fundur 1647 Skipulagsnefnd / 19. júní 2023 Fundur 122 Frístunda- og menningarnefnd / 14. júní 2023 Fundur 126 Bæjarráð / 13. júní 2023 Fundur 1646 Bæjarráð / 6. júní 2023 Fundur 1645 Skipulagsnefnd / 5. júní 2023 Fundur 121 Skipulagsnefnd / 6. mars 2023 Fundur 116 Skipulagsnefnd / 15. maí 2023 Fundur 120 Bæjarstjórn / 30. maí 2023 Fundur 541 Bæjarráð / 23. maí 2023 Fundur 1644 Bæjarráð / 16. maí 2023 Fundur 1643 Fræðslunefnd / 4. maí 2023 Fundur 131 Hafnarstjórn / 8. maí 2023 Fundur 489 Bæjarráð / 2. maí 2023 Fundur 1642 Skipulagsnefnd / 3. maí 2023 Fundur 119 Frístunda- og menningarnefnd / 3. maí 2023 Fundur 125 Fræðslunefnd / 17. apríl 2023 Fundur 130 Bæjarstjórn / 25. apríl 2023 Fundur 540 Bæjarráð / 18. apríl 2023 Fundur 1641 Skipulagsnefnd / 3. apríl 2023 Fundur 118 Fræðslunefnd / 2. mars 2023 Fundur 129 Bæjarráð / 4. apríl 2023 Fundur 1640 Bæjarstjórn / 29. mars 2023 Fundur 539 Bæjarráð / 22. mars 2023 Fundur 1639 Skipulagsnefnd / 22. mars 2023 Fundur 117 Bæjarráð / 22. mars 2023 Fundur 1638

Framleitt af pallih fyrir gogn.in