Mosfellsbær
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 500
==== 19. júní 2023 kl. 11:00, ====
í Kjarna
== Fundinn sátu ==
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
== Fundargerð ritaði ==
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Bjarkarholt 17-29 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, ==
[202306153](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202306153#5z8chwwqkeibcpytct7tua1)
Húsfélag Bjarkarholts 25-29 sækir um leyfi til að byggja úr gleri og málmi svalalokanir á fjölbýlishúsum nr. 25, 27 og 29 á lóðinni Bjarkarholt nr. 11-29 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
== 2. Bugðufljót 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202103381](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202103381#5z8chwwqkeibcpytct7tua1)
BF17 ehf. Bíldshöfða 14 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Bugðufljót nr. 17 í samræmi við framlögð gögn. Breyting felur í sér ný milliloft í rýmum 0101, 0102, 0104, 0105, 0107, 0108 og 0109. Stækkun samtals 289,8 m².
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
== 3. Desjamýri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==
[202301462](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202301462#5z8chwwqkeibcpytct7tua1)
Matthías Bogi Hjálmtýsson Vesturfold 40 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta atvinnuhúsnæðis á lóðinni Desjamýri nr. 2 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
== 4. Desjamýri 13 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1, ==
[202305851](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202305851#5z8chwwqkeibcpytct7tua1)
HDE ehf. Þórðarsveig 20 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr límtré og samlokueiningum atvinnuhúsnæði á lóðinni Desjamýri nr. 13 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 1.799,6 m², 11.982,7 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
== 5. Skeljatangi 10 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, ==
[202304369](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202304369#5z8chwwqkeibcpytct7tua1)
Henný Rut Kristinsdóttir Skeljatanga 10 sækir um leyfi til að byggja við einbýlishús viðbyggingu úr timbri á lóðinni Skeljatangi nr. 10 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: Íbúð 42,3 m², 103,6 m³.