Suðurnesjabær
Bæjarráð
= Bæjarráð =
Dagskrá
=== 1.Rekstraryfirlit 2023 ===
2304039
Rekstraryfirlit janúar - júní 2023. Elísabet G Þórarinsdóttir sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram.
=== 2.Ráðhús - húsnæði ===
2303102
Minnisblað frá bæjarstjóra, mannauðsstjóra og verkefnastjóra á umhverfis-og skipulagssviði og frá JeES arkitektum varðandi breytingar á húsnæði ráðhúss. Haukur Þór Arnarson mannauðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samþykkt samhljóða að láta vinna þarfagreiningu vegna starfsemi sviða í ráðhúsinu í Garði samkvæmt tillögum í minnisblöðum.
=== 3.Starfsmannamál ===
2307056
Minnisblað frá bæjarstjóra og mannauðsstjóra varðandi starfsmannamál og starfaskipulag á stjórnsýslu-og fjármálasviði. Haukur Þór Arnarson mannauðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga í minnisblaði varðandi starfsmannamál og starfaskipulag samþykkt samhljóða.
=== 4.Deiliskipulag Garðskaga - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu ===
1809067
Á 46. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 20.07.2023 var til umfjöllunar tillaga að deiliskipulagi Garðskaga, sem var auglýst samhliða nýju aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034, sem hefur öðlast gildi. Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi Garðskaga og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun skipulagið til staðfestingar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða að staðfesta tillögu að deiliskipulagi Garðskaga, skipulagsfulltrúa falið að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagið til staðfestingar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
=== 5.Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 ===
2307009F
46. fundur dags. 20.07.2023.
Lagt fram.
- Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Framkvæmda- og skipulagsráð samþykkti á fundi sínum þann 28. apríl 2022 og Bæjarstjórn þann 4. maí 2022 að auglýsa og kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðskaga skv. 43. gr skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan var kynnt samhliða tillögu að Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034. Tillögurnar voru til kynningar á tímabilinu 9. nóvember til 23. desember 2022. Ein athugasemd barst sem sneri að reit VÞ15 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar sem er innan þess svæðis sem deiliskipulagstillaga Garðskaga nær yfir. Brugðist var við athugasemdinni með því að greinargerð aðalskipulagsins var uppfærð í samræmi við athugasemd, þ.e. sett voru inn nánari ákvæði um ásýnd svæðisins og aðgengi íbúa að gönguleið með ströndinni. skv. lið 21.1 í minnisblaði Verkís, dags. 23.01.2023 sem var lagt fram og samþykkt í Bæjarstjórn þann 1. febrúar 2023 og er deiliskipulagstillaga Garðskaga í samræmi við Aðalskipulag Suðurnesjabæjar sem öðlaðist gildi í með auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda þann 14. júlí 2023.
Framkvæmda- og skipulagsráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi Garðskaga og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun skipulagið til staðfestingar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- 5.2 2307037
[Deiliskipulag ÍB15 við Garðvang - Ósk landeigenda um heimild til endurskoðunar og breytingu á deiliskipulagi](/is/stjornsysla/fundargerdir/framkvaemda-og-skipulagsrad/418#2307037)Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Ráðið tekur jákvætt í erindið án þess að tekin sé afstaða til hugsanlegra tillagna. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið frekar með landeigendum í samráði við Framkvæmda- og skipulagsráð.
- Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Fyrirhuguð bygging er ekki í samræmi við það hús (mhl. 03) sem áður stóð á lóðinni. Það var ein hæð og kjallari. Húsið sem nú er sótt um er ein hæð og ris, eða tæpa 6 metra á hæð. Ráðið getur ekki fallist á að breytingin sé lítilsháttar, eins og fram kemur í byggingarlýsingu. Erindi hafnað.
- 5.4 2207006
[Göngustígur milli Garðs og Reykjanesbæjar](/is/stjornsysla/fundargerdir/framkvaemda-og-skipulagsrad/418#2207006)Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Fyrirhugaður göngustígur er í samræmi við aðalskipulag Reykjanes- Suðurnesjabæjar og er framkvæmdin er í grenndarkynningu gangvart landeigendum. Ráðið felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gefa út framkvæmdarleyfi þegar endanleg útfærsla liggur fyrir að lokinni grenndarkynningu.
- 5.5 2109027
[Strandgata 24 - fyrirspurn - stækkun fasteignar](/is/stjornsysla/fundargerdir/framkvaemda-og-skipulagsrad/418#2109027)Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Ráðið samþykkir að fela byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
- Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Grenndarkynningu lokið. Ein athugasemd barst. Athugasemdin varðar ekki fyrirhugaða framkvæmd, heldur er ábending um hvernig haga mætti girðingu við lóðarmörk Strandgötu 10 og 12.
Afgreiðsla: Athugasemdin er ekki til þess fallin að synja beri erindinu og er það því samþykkt. Byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist, þ.á.m. samþykki eiganda Strandgötu 10.
- Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Ekki er hægt að samþykkja erindið á þeim forsendum að „skjólgirðing“ sé með þaki sem tengist húsi. Slíkt mannvirki væri skilgreint sem B- rými samkvæmt skráningarreglum og yrði því hluti af brúttó flatarmáli húss, sem viðbygging. Ráðið hafnar erindinu.
- Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Byggingarfulltrúa falið skoða málið frekar í samráði lóðarhafa og fyrirhuguð afnot á hugsanlegri viðbótarlóð.
- Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Ráðið hafnar breytingu á deiliskipulaginu eins og tillagan er sett fram. Skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda mögulega útfærslu.
- 5.10 2306070
[Sjávarbraut 3 - umsókn um lóð](/is/stjornsysla/fundargerdir/framkvaemda-og-skipulagsrad/418#2306070)Framkvæmda- og skipulagsráð - 46 Skipulagsfulltrúi leggur til að afgreiðslu verði frestað.
Fundi slitið - kl. 16:45.