Dalabyggð

Byggðarráð Dalabyggðar - 312

27.07.2023 - Slóð - Skjáskot

    **1. 2304008 - Sælingsdalstunga**

|Tvö tilboð hafa borist.| Lagt til að gera gagntilboð á móti hærra tilboðinu. Lægra tilboðinu hefur þegar verið hafnað. Samþykkt samhljóða. 2. 2305018 - Innkaup Dalabyggðar, útboð og verðkönnun |Sveitarstjóra falið að ganga frá samningi vegna reksturs mötuneytis Auðarskóla í samræmi við gögn sem kynnt eru á fundinum.| Samþykkt samhljóða. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningi vegna ræstinga í Auðarskóla og stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar í samræmi við gögn sem kynnt eru á fundinum. Samþykkt samhljóða. 3. 2301018 - Vínlandssetur |Drög að samningi um rekstur veitingastaðar á Vínlandssetri lögð fram til kynningar.| Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt samhljóða. Drög að samningi um rekstur sýningarhalds á Vínlandssetri lögð fram til kynningar. Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt samhljóða. 4. 1702012 - Starfsmannamál - ráðning verkefnastjóra fjölskyldumála |Sveitarstjóri kynnir ráðningu verkefnastjóra fjölskyldumála í Dalabyggð. | Jóna Björg Guðmundsdóttir tekur til starfa 14. ágúst nk.

Framleitt af pallih fyrir gogn.in