Skorradalshreppur
Afgreiðslufundir byggingafulltrúa - 72. fundur
=== Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Skorradalshrepps ===
72. fundur
==== Mánudaginn 24. júlí 2023 kl. 16:00, hélt byggingarfulltrúi Skorradalshrepps afgreiðslufund. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson og Sæmundur Víglundsson. ====
Fundarritari var Sæmundur Víglundssson, byggingarfulltrúi.
**Þetta gerðist:** **Byggingarleyfismál** **1. Skógarás 8, Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi – Mál nr. 2307003
**Sótt er um heimild til að byggja 112,3 m2 frístundarhús á lóðinni. Áður árið 2006 hafði verið veitt leyfi fyrir byggingu á 65,7 m2 húsi. *Byggingaráformin eru samþykkt.* **2. Fitjahlíð 100, Umsókn um byggingarleyfi OneLandRobot – Mál nr. 2307006
**Sótt er um að byggja 185,0 m2 frístundarhús á lóðinni. *Erindinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar þar sem engir byggingarskilmálar eða deiliskipulag eru í gildi fyrir þetta svæði.* **3. Dagverðarnes 72a – Umsókn um byggingarheimild – Mál nr. 2307007
**Sótt er um að byggja við núverandi sumarhús, 39,9 m2. Alls verður því frístundarhúsið 103,9 m2 *Byggingaráformin eru samþykkt*