Fjarðabyggð
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 31
**1. 2307046 - Umsókn um lóð**
|Nestak sækir um lóðina Sólbakka 2 til 6 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni en vekur athygli á gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir 1,5 hæð.|
**2. 2307089 - Sólbakki 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Framlögð umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi frá Nestak fyrir fjölbýlishús að Sólbakka 2 til 6 á Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að grenndarkynningu lokinni og öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.|
**3. 2306156 - Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.|
**4. 2307108 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
|Framlögð umsókn um stækkun lóðarinnar Strandgata 18A á Norðfirði. Sótt er um stækkun á lóð samkvæmt upplýsingum og teikningu sem sent var á Svan Árnason þann 10.júlí 2023 en við komum ekki inn viðhengjum með hér. Sótt um stækkun á lóð til norðurs inn á land Fjarðabyggðar svo hægt sé að koma fyrir geymslukofa á lóð. Sótt er um stækkun upp á 8 metra til norðurs upp í gilið. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stækkun lóðar og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðaleigusamning.|
**5. 2302013 - Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði**
|Framlagt erindi frá Sterkum Stöðvarfirði þar sem lagðar eru fram hugmyndir að nýtingu Balans. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum og lýst vel á útfærslu á fyrirhuguðum almenningsgarði á Balanum, Stöðvarfirði. Nefndin kemur til með að hafa verkefnið til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024.|
[102405-V002 Balinn Tillaga A.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=EXWBLI0nhkiCZUtcvmVVqA&meetingid=nTi3wfYqHUuUkHzWPaoN8w1
&filename=102405-V002 Balinn Tillaga A.pdf)
[Balinn_Sterkur Stöðvarfjörður_27062023.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=SKaw6CorWEiTQq8GT6yOw&meetingid=nTi3wfYqHUuUkHzWPaoN8w1
&filename=Balinn_Sterkur Stöðvarfjörður_27062023.pdf)
**6. 2302021 - Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira**
|Vísað frá bæjarráði til kynningar umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu um innleiðingu á klippikortum á móttökustöðvum úrgangs í Fjarðabyggð. Gert er ráð fyrir því að frá og með 15. september þurfi einstaklingar og rekstraraðilar að framvísa klippikortum á gámavöllum við losun úrgangs. Eitt klippikort verði afhent hverju heimili án endurgjalds en eftir það verði innheimt gjald við afhendingu klippikorta. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur verkefnisstjóra umhverfismála að gera minnisblað er varðar þjónustustig móttökustöðva.|
[Minnisblað til bæjarráðs vegna klippikorta.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=RqkYHEy800ekvdaloEtvCQ&meetingid=nTi3wfYqHUuUkHzWPaoN8w1
&filename=Minnisblað til bæjarráðs vegna klippikorta.pdf)
**7. 2307135 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira**
|Framlögð umsókn um framkvæmdaleyfi frá Sigurði Baldurssyni. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og bendir á ábendingar og tillögur Náttúrustofu Austurlands og Fiskistofu. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.|
Þuríður Lillý Sigurðardóttir vék af fundi undir þessum lið.
[2021_03_29_Umsogn_Slettua_bakkav_sent (1).pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=fHiZpQU9BEquj3asSUXulA&meetingid=nTi3wfYqHUuUkHzWPaoN8w1
&filename=2021_03_29_Umsogn_Slettua_bakkav_sent (1).pdf)
[Bakkavörn sléttuá.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=o7DvvELsA06_zjHTN3B3tg&meetingid=nTi3wfYqHUuUkHzWPaoN8w1
&filename=Bakkavörn sléttuá.pdf)
[Leyfi Fiskistofu vegna bakkavarna við Sléttuá.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=7nLNXlmT5E23wEUm1LXMA&meetingid=nTi3wfYqHUuUkHzWPaoN8w1
&filename=Leyfi Fiskistofu vegna bakkavarna við Sléttuá.pdf)
**10. 2306106 - Ystidalur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Niðurstöður grenndarkynningar fyrir Ystadal 5, Eskifirði. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum gögnum hefur verið skilað.|
**8. 2307001F - Fjallskilanefnd - 3**
|Fundargerð fjallskilanefndar frá 13. júlí lögð fram til afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir fundargerð.|
**8.1. 2306063 - Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði**
**8.2. 2302037 - Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins**
**8.3. 1808042 - Fjárréttir í Fjarðabyggð**
**8.4. 2307003 - Fjallskil og gangnaboð 2023**
**8.5. 2103192 - Sauðfé í þéttbýli - úrræði**
**9. 2307013F - Fjallskilanefnd - 4**
|Fundargerð fjallskilanefndar frá 28. júlí lögð fram til afgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfestir fundagerð.|
**9.1. 2306063 - Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði**
**9.2. 2307003 - Fjallskil og gangnaboð 2023**