Snæfellsbær
Bæjarráð – 331. fundur
Fundargerð bæjarráðs
331. fundur
7. apríl 2022 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 11:00 – 11:15
**Fundinn sátu**: Júníana B. Óttarsdóttir, Auður Kjartansdóttir, Svandís Jóna Sigurðardóttir, Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Lilja Ólafardóttir bæjarritari. **Fundargerð ritaði**: Lilja Ólafardóttir bæjarritari.
Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var gengið beint til boðaðrar dagskrár.
==== Dagskrá: ====
**1. ** **Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2021.**
Bæjarráð fór yfir ársreikning Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2021. Nokkur umræða varð um reikninginn.
Bæjarráð samþykkti ársreikninginn samhljóða og samþykkti jafnframt að vísa ársreikningi Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2021 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.