Mosfellsbær
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar - 269
==== 17. ágúst 2023 kl. 16:30, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Erla Edvardsdóttir (EE) formaður
- Leifur Ingi Eysteinsson (LIE) varaformaður
- Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) aðalmaður
- Katarzyna Krystyna Krolikowska (KKr) áheyrnarfulltrúi
- Margrét Gróa Björnsdóttir (MGB) áheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Örn Arnarson (HÖA) aðalmaður
- Kjartan Jóhannes Hauksson (KJH) varamaður
- Edda Ragna Davíðsdóttir menningarsvið
- Gunnhildur María Sæmundsdóttir fræðslusvið
== Fundargerð ritaði ==
Edda Davíðsdóttir Forvarnar og tómstundafulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Stjórnsýslu- og rekstrarúttekt ==
[202210483](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202210483#phgtysqmju2euaxa1jeaga1)
Kynning á stjórnkerfisbreytingum hjá Mosfellsbæ.
Á fundinn mætti Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri og kynnti stjórnsýslu og rekstrarúttekt sem farið hefur fram og þær breytingar sem að taka gildi 1. september.
== Gestir ==
- Regína Ásvaldsdóttir Bæjarstjóri
== 2. Ungt fólk vor 2023 ==
[202306282](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202306282#phgtysqmju2euaxa1jeaga1)
Rannsókn og Greining lagði fyrir könnun vor 2023. Á fundinn mætir Margrét Lilja sérfræðingur.
Á fundinn mætti Margrét Lilja. Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar góða kynningu.
== Gestir ==
- Margrét Lilja Guðmundsdóttir
== 3. Fjárhags- og fjárfestingaáætlun 2024- íþrótta- og tómstundanefnd ==
[202308310](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202308310#phgtysqmju2euaxa1jeaga1)
Lögð fyrir íþrótta- og tómstundanefnd kynning vegna undirbúnings fjárhags- og fjárfestingaráætlunar fyrir árið 2024
Undirbúningur vinnu við fjárhags- og fjárfestingaáætlun ársins 2024. Kynning og umræða. Ákveðið að halda vinnufund ágúst.
== 4. Tillaga D lista um breytingar á úthlutunarreglum frístundastyrks fyrir 67 ára og eldri ==
[202308313](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202308313#phgtysqmju2euaxa1jeaga1)
Tillaga D lista um breytingar á úthlutunarreglum frístundastyrks fyrir 67 ára og eldri
Íþrótta- og tómstundanefnda samþykkir með 5 atkvæðum að vísa tillögunni til umsagnar á fræðslu- og frístundasviði.
== 5. Ársyfirlit íþróttamiðstöðva 2022 ==
[202308320](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202308320#phgtysqmju2euaxa1jeaga1)
Ársyfirlit íþróttamiðstöðva lagt fram og kynnt
Frestað