Vopnafjarðarhreppur
Fjölskylduráð - 12
== Fundur nr. 12 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 10:00
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð
BS
Berglind SteindórsdóttirNefndarmaður
DB
Dorota BurbaNefndarmaður
HD
Hjörtur DavíðssonNefndarmaður
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
HA
Heiðbjört AntonsdóttirNefndarmaður
FRÞ
Finnbogi Rútur ÞormóðssonNefndarmaður
ÞS
Þórhildur SigurðardóttirNefndarmaður
Fundur var haldinn þriðjudaginn 15. ágúst á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 10:00.
Ákveðið að hafa fundartíma kl. 8:15 í Miklagarði til reynslu.
Starf fjölskylduráðs í vetur til umræðu. Fundað verður með ungmennaráði og öldungaráði.
Fjölskylduráð leggur fram eftirfarandi tillögur fyrir fjárhagsáætlun 2024:
a. Skólalóð — setja á fjárhagsáætlun í þriðja sinn og klára
b. Taka hjólaramp á skólalóð í burtu
c. Myndavélar við leikskóla og skóla
d. Hækkun frístundastyrks. Æfingagjöld hafa hækkað, margt í boði fyrir börn. Ef það er afgangur af upphæðinni 2023 að bjóða upp á auka frísundastyrk sem gildir bara fyrir haustönnina.
e. Athuga að lengja opnunartíma sundlaugar í september og maí.
f. Setja upp heita potta við íþróttahús
g. Fjölskylduráð leggur áherslu á að skoða hjólastólabíl fyrir sveitafélagið.
h. Að göngustígar verði lagfærðir, efnið sem er notað er of gróft. Ruslatunnum í bænum fjölgað.
i. Að skoðað verði að gefa afslátt af leigu á Miklagerði eða öðru húsnæði fyrir barnaafmæli þar sem að félagsmiðstöð er ekki í boði lengur.
Ekki fleira var tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:00.