Dalabyggð
Byggðarráð Dalabyggðar - 291
**1. 2205027 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts**
|Umsóknin samþykkt samhljóða.|
[Ársreikningur 2021 Ólafur Pá.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=uryij8BQdUSSMhFvHUwpOw1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=xTxVlbO0GUKtdzHTR376RQ1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
**2. 2206001 - Tjaldsvæðið Laugum Sælingsdal 2022**
|Samningur við Hótel Laugar samþykktur samhljóða.|
Gjaldskrá fyrir tjaldsvæðið á Laugum samþykkt samhljóða.
[Gjaldskrá Tjaldsvæðið Laugum 2022 íslenska.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Dt9kX8T8c0WjNH3eWySjjA&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Samningur_tjaldsvaedi_Laugar_2022.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=4ggezeXIsUSpOTf21TfO1g&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
**3. 2205019 - Ráðning sveitarstjóra**
|Formanni byggðarráðs falið að ganga frá samningi við sveitarstjóra í samræmi við umræður á fundinum.|
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjóri vék af fundi undir umræðum um dagskrárlið 3.
**4. 2205025 - Frístundaakstur**
|Ýmsar leiðir ræddar en frekari ákvörðunum frestað þar til skipulag æfinga og niðurstöður annarra nefnda/aðila sem málinu var vísað til liggja fyrir.|
Samþykkt samhljóða.
**5. 2206004 - Styrkur vegna tónlistarnáms utan sveitarfélags**
|Styrkur samþykktur samhljóða. Sótt verður um mótframlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.|
**6. 2203002 - Breyting á deiliskipulagi í Ólafsdal**
|12 umsagnir bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.|
Minjastofnun gerði athugasemd sem varðaði þrjá minjastaði sem stofnunin taldi að yrðu í hættu vegna fyrirhugaðrar skógræktar. Stofnunin gat því ekki samþykkt breytingartillöguna eins og hún var kynnt fyrir stofnuninni og benti á að afmarka þyrfti þessa þrjá minjastaði ásamt 15m helgunarsvæði. Að því loknu þyrfti uppfærð breytingartillaga að berast Minjastofnun aftur til umsagnar.
Brugðist hefur verið við athugasemd Minjastofnunar með afmörkun þriggja minjastaða ásamt 15m helgunarsvæðis, í samræmi við umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 12. maí 2022. Það eru minjar DA-198:026 (garðlag túngarður), DA-198:031 (Grjótnátthagi gerði nátthagi) og DA-198:116 (garðlag túngarður). Skógræktarsvæði eru minnkuð í samræmi við það og uppdrættir og greinargerð uppfærðir. Minjum og 15 m verndarsvæði þeirra er bætt inn á uppdrætti.
Uppfærð skipulagstillaga var send Minjastofnun til yfirferðar þann 30. maí sl. og gerir stofnunin ekki frekari athugasemdir við skipulagið.
Umhverfisstofnun bendir á að mikilvægt sé að skógræktarsvæðið sé afmarkað á þann hátt að það raski ekki votlendissvæði sem liggur í jaðri fyrirhugaðrar skógræktar.
Brugðist hefur verið við athugasemdum Umhverfisstofnunar en afmörkun skógræktar er breytt í námunda við votlendi og skógrækt færð fjær votlendinu til að forðast rask og þurrkun þess.
Náttúrufræðistofnun gerir ekki athugasemd við afmörkun skógræktarsvæðisins með tilliti til fuglalífs í dalnum og telur að staðsetning fyrirhugaðrar skógræktar muni hafa lítil neikvæð áhrif á flesta vaðfugla innan svæðisins.
Stofnunin bendir þó á þá annmarka í skipulagstillögunni að óljóst sé hvort alfarið verði notaðar innlendar trjátegundir eða hvort plantað verði lerki og greni utan girðinga.
Brugðist hefur verið við þessum ábendingum Náttúrufræðistofnunar með því að fjarlægja klausu um að greni og lerki sé líklegra til að pluma sig betur á beitarlandi. Nú er lagt til að eingöngu verði innlendum og lágvöxnum tegundum plantað á svæðinu. Þannig er komið í veg fyrir að erlendar tegundir berist í votlendið og ásýnd svæðisins vernduð.
Ólafsdalsfélagið gerir athugasemdir við að ráðgert sé að leggja umtalsverð svæði í Ólafsdal undir skógrækt og fer félagið fram á að þessum fyrirætlunum verði hafnað.
Félagið bendir á að í dalnum séu beðasléttuminjar sem beri að vernda.
Byggðarráð áréttar að við vinnslu deiliskipulagsins hefur verið reynt að horfa til þess að ræktun sé einkum utan þeirra svæða sem beðasléttur ná til. Ekki er því fyrirhugað að taka nema í litlum mæli þau svæði undir frekari ræktun en er í dag. Það er fyrirhugað að gera svo mikið sem kostur er úr öllu því starfi sem unnið var á tíma bændaskólans og þar eru beðaslétturnar stór þáttur.
Ólafsdalsfélagið gerir auk þess athugasemdir við að þegar fram líða stundir mun skógurinn fara að dreifa sér um jörðina. Það mun valda því að gróa fer yfir minjar eða þær hverfa sjónum.
Byggðarráð bendir á að þar sem um verndaðar fornminjar er að ræða þarf landeigandi að sjá til þess að komið verði í veg fyrir óæskilega plöntun í námunda við þær. Halda þarf í skilgreint helgunarsvæði fornminja.
Í athugasemd frá Landgræðslunni er beint tilmælum að hafa skal í huga verndargildi vistgerða og markmið um vernd menningarminja og að notast sé við nærtækar innlendar tegundir sem finnast í dalnum fremur en lerki og greni líkt og nefnt er.
Brugðist hefur verið við þessum tilmælum og er nú er lagt til að eingöngu verði innlendum og lágvöxnum tegundum plantað á svæðinu. Þannig er komið í veg fyrir að erlendar tegundir berist í votlendið og ásýnd svæðisins vernduð.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, Reykhólahreppur, Veðurstofa Íslands og Vegagerðin gera í umsögnum sínum ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.
Byggðarráð samþykkir samhljóða tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Ólafsdal með áorðnum breytingum eftir auglýsingu og leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og taki gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
[Ums Land breyting deiliskipulag Dalabyggð.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=o_OP5dwCtEiunb5IzYF4rw1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[NÍ viðbót við umsögn (votlendi,fuglar).pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=mz26QbjvDUiRVUP83oNaHg1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[2022 0524 Dalabyggð Ólafsdalur br DSK HEV.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=_Ec0ycFsPEqckn4yGZgtSg1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[NÍ viðbót við umsögn (jarðfræðihluti).pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=cX8E9SwK5kyDUQ0sc_sJeA1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Dalabyggð - Ólafsdalur - deiliskipulagsbreyting - svar VÍ.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=SziberrGnEKUQv347Zv3Xg1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Olafsdalur Dalabyggd.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=jpfQ50uWfkmEXDuEnIKfHg1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Ól_deiliskipulag athugasemdir Ólafsdalsfélagið.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=BNZ_MFd9rEaHudq_VmvBqQ1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Umsögn frá Reykhólahreppi.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=gKSPVG51gkaYDCbU14jDMQ1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Umsögn NÍ.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=R1196INFHUm0MVUoKIpFmg1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Umsögn Ólafsdalur.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=FhbhzHfSTkuVUtEbM6_BRg1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Vagagerðin umögn - Ólafsdalur Dalabyggð DSK breyting.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=q1IrqwjFEari5uHRPUq3Q1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Olafsdalur 2 Dalabyggd Minjastofnun.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=bGrL8qhT5Ui5uPeI77WkCw1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[DÞ1601C-Olafsdalur_dskuppdr_A0-1000-2022-05-30_.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=SK7W6EYW0SIafDgcjRaQ1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[DÞ1601C-olafsdalur_pl-A2 75000_2022-05-30_.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=bseIuUkE0iZay0W7cb5qw1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[Ólafsdalur svör við athugas v_dskbreytingar.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=OlBiPydeUEKfVimZWWORug1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[DÞ1601c_br_Olafsdalur grg_2022-05-30.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=LVgg58UwEqcpHs9QqfF2w1&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
**7. 2206006 - Sumarlestrarátak**
|Byggðarráð þakkar Stefaníu B. Jónsdóttur fyrir erindið.|
Samþykkt að efna til "lestrarbingós" fyrir börn 5 til 12 ára. Skoðað verði með lestrarátak sumarið 2023.
[Sumarlestrar átak hugmynd af verkefni, beiðni um styrk..pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=X47cYRsBlUajASM6uOsvlw&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
[lestraratak_sumar22.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Zh3rqsnVfESXmD5jinazPg&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
**8. 2206005 - Ráðning markavarðar**
|Sveitarstjóra falið að ganga frá ráðningu.|
Samþykkt samhljóða.
**9. 2206009 - Viðhald félagslegra íbúða**
|Sveitarstjóra falið að gera áætlun um viðgerðir og síðan verður lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun.|
Samþykkt samhljóða.
**10. 2206010 - Umsögn um tækifærisleyfi vegna almenns dansleiks í Dalabúð 2. júlí 2022**
|Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfisins.|
Samþykkt samhljóða.
**11. 2003023 - Áætlun um refaveiðar 2020-2022**
|Veiðikvóti vegna refs verður skoðaður fyrir næsta ár.|
Samþykkt samhljóða.
**13. 2206002 - Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði**
|Vísað til fjárhagsáætlunarvinnu.|
[Sveitarfélög áskorun vegna fasteignaskatts 310522.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=a17mc8eMECDW0cIrAib1A&meetingid=JaGI2Lr6kGJO2CLAFWGsw1)
**14. 2206008 - Almenningssamgöngur á Íslandi - Boð um þátttöku í vinnustofu**
|Lagt fram.|
**15. 2204010 - Ráðning skipulagsfulltrúa**