Fjarðabyggð
Mannvirkja- og veitunefnd - 18
**1. 2104121 - Áfangastaðir Ferðamálastofa 2021**
|Mannvirkja- og veitunefnd þakkar atvinnu- og þróunnarstjóra fyrir kynninguna. Sviðstjóra framkvæmdasviðs og atvinnu- og þróunnarstjóra falið að vinna verkefnið áfram og leggja fyrir að nýju.|
**2. 2301057 - Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði**
|Vísað frá bæjarráði til mannvirkja- og veitunefndar kostnaðaráætlun fyrir skólahúsnæði að Lambeyrarbraut 14 á Eskifirði. Framlagt og kynnt.|
**3. 2307074 - Bréf til Bæjarráðs**
|Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar mannvirkja- og veitunefndar bréfi frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar um viðhalds- og endurbótaverkefni sem óskað er eftir að hugað verði að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024. Mannvirkja- og veitunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar 2024. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Punktar 1 og 5|
[Bréf frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar sem þarf að berast til bæjarráðs..pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=XMoQiLHZpUafjjypAmZgMA&meetingid=TZC15aqsyEWkFreV6NGpFw1
&filename=Bréf frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar sem þarf að berast til bæjarráðs..pdf)
**4. 2308159 - Síkkun á dælu í ES-2 Eskifirði**
|Lögð fram tölvupóst samskipti við HD varðandi kostnað vegna síkkunar á ES-2. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir tillögur sviðstjóra að auka rekstraöryggi hitaveitunar Eskifjarðar og felur honum að vinna málið áfram.|
**5. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023**
|Farið yfir stöðu framkvæmda í Fjarðabyggð. Mannvirkja- og veitunefnd þakkar fyrir kynninguna. Málið lagt fyrir að nýju á næsta fundi.|
**6. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL**
|Lagt fram frá fjármálastjóra yfirlit yfir rekstur málaflokka fyrstu 6 mánuði ársins 2023. Sviðsstjóra falið að rýna yfirlitið með fjármálastjóra og leggja málið fyrir að nýju.|