Fjarðabyggð
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 11
**1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL**
|Framlag yfirlit yfir rekstur málaflokksins fyrstu 6 mánuði ársins 2023.|
**2. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024**
|Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu stjórnar menningarstofu og safnastofnunar fjárhagsramma menningarmála fyrir árið 2024. |
Stjórnin felur sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna drög að fjárhagsáætlun og leggja fyrir stjórn tillögur á næsta fundi.
**3. 2309072 - Uppbyggingarsjóður 2023 - umsóknir og styrkveitingar**
|Búið er að opna fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands. Hlutverk Uppbyggingarsjóðs er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni sem falla að Sóknaráætlun Austurlands. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarverkefna. Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 16. október og lokar kl. 23:00.|
**4. 2301047 - Verkefni menningarstofu 2023**
|Forstöðumaður menningarstofu fór yfir verkefni sumarsins og þau sem eru á döfinni á næstu mánuðum.|
[Menningarstofa Verkefni - Yfirlit SMS 2023_September.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=pR52Xn2ndkmovzxacPbVYQ&meetingid=cuoVdFmtb0ich6nqa_HFBQ1
&filename=Menningarstofa Verkefni - Yfirlit SMS 2023_September.pdf)
**5. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar**
|Umræða um endurskoðun menningarstefnu og að haldin yrði menningarmót eða málstefna um menningarmál í Fjarðabyggð sem yrði efniviður inn í endurskoðun stefnunnar.|
Stjórnin stefnir á að halda tvö menningarmót í nóvember, útfærsla og tímasetning rædd á næsta fundi.
**6. 2307118 - Björn Pálsson sjúkraflugmaður - beiðni um styrk vegna bókaútgáfu**
|Framlögð beiðni Björns Pálssonar sjúkraflugmaður um styrk vegna bókaútgáfu.|
Stjórnin samþykkir að veita styrk.