Vesturbyggð
Bæjarráð - 968
= Bæjarráð #968 =
Fundur haldinn í fjarfundi, 12. september 2023 og hófst hann kl. 12:00
====== Nefndarmenn ======
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
====== Starfsmenn ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri
====== Fundargerð ritaði ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
== Almenn erindi ==
=== 1. Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023 ===
Menningar- og ferðamálafulltrúi Vesturbyggðar kom inná fundinn og fór yfir tillögur að umsóknum Vesturbyggðar í Framkvæmasjóð ferðamannastaða 2023, m.t.t. heildarmats menningar- og ferðamálaráðs sem leggur til við bæjarráð að sótt verði um fyrir verkefnunum, Laugerneslaug, skógræktarsvæðið á Bíldudal og útsýnispallur á Strengfelli, með fyrirvara um samþykki landeigenda.
Bæjarráð þakkar fyrir góða vinnu og felur menningar- og ferðamálafulltrúa að sækja um í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða í þau verkefni sem hún metur í samráði við Vestfjarðastofu að falli reglum sjóðsins og séu líkleg til að hljóta styrk.
=== 2. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs ===
Sviðssstjóri fjölskyldusviðs kom inná fundinn og fór yfir þau verkefni sem eru efst á baugi.
=== 3. Málstefna sveitarfélaga ===
Lagður fyrir tölvupóstur dags. 5. september 2023 frá Innviðaráðuneytinu þar sem athygli sveitarstjórna er vakin á því að sveitarfélögin beri skv. 130. gr. sveitarsjórnarlaga að setja sér málstefnu í samráði við Íslenska málnefnd og eftir atvikum málnefnd um íslenskt táknmál. Þar skal koma fram að öll gögn liggi fyrir á íslensku svo sem kostur er og gerð grein fyrir heimilum undantekningum á þeirri reglu
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
=== 4. Rekstur og fjárhagsstaða 2023 ===
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fór yfir rekstur sveitarfélagsins fyrir janúar til júlí.
=== 5. Framkvæmdaáætlun ársins 2023 ===
Farið yfir stöðu framkvæmda á árinu 2023.
Elfar Steinn Karlsson, hafnastjóri var gestur á fundinum undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar starfsfólki fyrir upplýsingar um stöðu framkvæmda ársins.
=== 7. Umsagnarbeiðni - Breyting á rekstrarleyfi - Hótel Flókalundur ===
Lögð fyir beiðni Sýslumannsins á Vestfjörðum dags. 31.ágúst sl. um umsögn Penna ehf um breytingu á rekstrarleyfi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á rekstrarleyfinu. Jákvæð umsögn Vesturbyggðar er þó skilyrt þannig að rekstraraðili sýni fram á að hann hafi samið við Kubb ehf. eða aðra sambærilega aðila um förgun á sorpi sem fellur til við starfsemi gististaðarins og gert sé ráð fyrir viðeigandi fjölda bílastæða. Eins er umsögnin gerð með fyrirvara um umsögn slökkviliðsstjóra og Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.
=== 8. Strok úr sjókvíaeldi Arctic Fish í Patreksfirði ===
Umræður um strok úr sjókvíaeldi í Patreksfirði.
Bæjarráð gerir þær kröfur á eldisfyrirtæki að farið sé að lögum, innra eftirliti sé sinnt og leitað sé leiða til að koma í veg fyrir strok úr kvíum. Tillögur matvælaráðuneytisins að stefnumótun í lagareldi benda til þess nokkrar breytingar verði gerðar varðandi greinina m.a. að reglum um viðbrögð vegna stroka verði breytt og eftirlit verði eflt. Bæjarráð tekur vel í þær tillögur sem hafa verið kynntar og vonast til þess að unnið verði hratt og vel að fullvinnslu tillagnanna og innleiðingu með breytingum á lögum og reglum. Bæjarráð ítrekar kröfur sveitarfélagsins um að þáttur rannsóknar og eftirlits verður eflt og starfrækt á þeim svæðum sem sjókvíaeldi er til staðar.
== Til kynningar ==
=== 9. Aðalskoðun leiksvæða 2023 ===
Niðurstöður aðalskoðunnar leiksvæða í Vesturbyggð í samræmi við samning þar um.
Niðurstaða skoðunnar verður hluti af vinnugögnum vegna fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2024 sem nú er í vinnslu.
=== 10. Til samráðs - Áform um lagasetningu - Breyting á búvörulögum nr. 99-1993 Framleiðendafélög ===
Lagður fram tölvupóstur frá Matvælaráðuneyti dagsettur 28.ágúst sl. þar sem óskað er umsagnar um áform um lagasetningu - Breyting á búvörulögum nr. 99-1993 - Framleiðendafélög
=== 11. Til samráðs - Áform um breytingu á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir) ===
Lagður fram tölvupóstur frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu frá 28.ágúst sl. þar sem óskað er umsagnar um árform um breytingu á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).
=== 12. Til samráðs - Áform um breytingu á 15.gr. barnaverndarlaga nr. 80-2002 ===
Lagður fram tölvupóstur frá Mennta- og barnamálaráðuneyti dagsettur 28.ágúst sl. þar sem óskað er umsagnar um áform um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80-2002.
=== 13. Til samráðs - Áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (vinnustaðanám, innritun o.fl.) ===
Lagður fram tölvupóstur frá mennta- og barnamálaráðuneyti dagsettur 28.ágúst sl. þar sem óskað er umsagnar um áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla (vinnustaðanám, innritun o.fl.)
=== 14. Til samráðs - Mál nr. 159-2023 - Auðlindin okkar - sjálfbær sjávarútvegur. ===
Lagður fram tölvupóstur frá Matvælaráðuneyti dagsettur 29.ágúst sl. þar sem óskað er umnsagnar um mál nr. 159-2023 - Auðlindin okkar - sjálfbær sjávarútvegur.
=== 15. Til samráðs - Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar ===
Lagður fram tölvupóstur frá Matvælaráðuneyti dagsettur 29.ágúst sl. þar sem óskað er umsagnar um áform um lagasetningu - frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar (heildarlög).
=== 16. Til samráðs - Mál nr. 161-2023 - Breyting á lögræðislögum ===
Lagður fram tölvupóstur frá Dómsmálaráðuneyti dagsettur 29.ágúst sl. þar sem óskað er umsagnar um mál nr. 161-2023 - Breyting á lögræðislögum.
=== 17. Til samráðs - Mál nr. 162-2023 - Fjárfestingarkostir viðbótarlífeyrissparnaðar ===
Lagður fram tölvupóstur frá Fjármála- og efnahagsráðuneyti dagsettur 1.september sl. þar sem óksað er umsagnar um fjárfestingakosti viðbótarlífeyrissparnaðar.
=== 18. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis 2023 ===
Lögð fram til kynningar fundargerð 144. fundar Heilbirgðisnefndar ásamt fjárhagsáætlun og drögum að gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.
**Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30**