Vopnafjarðarhreppur
Menningar- og atvinnumálanefnd - 12
== Fundur nr. 12 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
FBF
Fanney Björk FriðriksdóttirNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
HBÓ
Hafdís Bára ÓskarsdóttirNefndarmaður
BM
Bobana MicanovicNefndarmaður
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
USÖS
Urður Steinunn Önnudóttir SahrNefndarmaður
ÍEJ
Íris Edda JónsdóttirRitari
Fundur haldinn í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps 13.9.2023 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 8:30. Hafdís Bára fór af fundi kl. 09:07.
Nokkrar umræður voru um menningaviðburði á haustdögum.
Nefndin hefur áhuga á að taka þátt í Dögum myrkurs og BRAS í samstarfi við Austurbrú ses.
Lagt til að skoða bókun á jólatónleikum á aðventunni.
Liggur fyrir að Vopnafjarðarhreppur haldi Heilsudaga í samstarfi við Brim í nóvember/desember.
Formanni nefndarinnar hefur borist beiðni frá sveitarstjóra þar sem hann óskar eftir að nefndin komi á framfæri upplýsingum sem hún óskar eftir að hafðar verði til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
Menningar- og atvinnumálanefnd leggur til við sveitarstjórn að ífjárhagsáætlun verði eftirfarandi liðum komið að:
Styrktarsjóður Menningamálanefndar. Sjóður sem hvetur einstaklinga til menningalegra verkefna og viðburða í Vopnafjarðarhreppi.
Aukið fjármagn til boðmiðlunar til ferðamanna. Uppfærsla bæklinga,
vefsíðu (visit síðu Vopnafjarðarhrepps) og kynningarefni til að setja
aukinn kraft í móttöku ferðamenna sem og auglýsingu og kynningu á staðnum. Aukinn sýnileiki upplýsingamiðstöðvar.
Nefndin leggur einnig til að ráðinn verði ferðamála-, atvinnu- og
menningarfulltrúi Vopnafjarðarhrepps og að settur verði aukinn krafturí þessa málaflokka.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:58.