Suðurnesjabær
Framkvæmda- og skipulagsráð
= Framkvæmda- og skipulagsráð =
Dagskrá
=== 1.Framkvæmda- og skipulagsráð - Fundardagskrá vetrarins lögð fram ===
2309074
Fundaráætlun vetrarins og dagskrárliðir lagðir fram til umræðu.
Fyrirhuguð vetrardagskrá lögð fram.
=== 2.Skerjabraut 1-7 - umsókn um lóð ===
2309068
Keðjuhúsalóðin Skerjabraut 1-7 er auglýst til úthlutunar á nýjan leik. 5 umsóknir bárust um lóðina.
Dregið var á milli umsækjenda og var umsókn nr. 2 PH smíði ehf. dregin út. Til vara, umsókn nr. 4 EFA ehf.
=== 3.Bárusker 2 - umsókn um lóð ===
2309057
Fjölbýlishúsalóðin Bárusker 2 er auglýst til úthlutunar á nýjan leik. 3 umsóknir bárust um lóðina.
Dregið var á milli umsækjenda og var umsókn nr. 3 HE verk ehf. dregin út. Til vara, umsókn nr. 2 Rætur fasteignir ehf.
=== 4.Bárusker 6 - umsókn um lóð ===
2309059
Raðhúsalóðin Bárusker 6 er auglýst til úthlutunar á nýjan leik. 14 umsóknir bárust um lóðina.
Dregið var á milli umsækjenda og var umsókn nr. 8 Fagurhóll Investments ehf. dregin út. Til vara, umsókn nr. 1 Líba ehf.
=== 5.Bárusker 8 - umsókn um lóð ===
2309060
Raðhúsalóðin Bárusker 8 er auglýst til úthlutunar á nýjan leik. 12 umsóknir bárust um lóðina.
Dregið var á milli umsækjenda og var umsókn nr. 11, HE Verk dregin út. Til vara, umsókn nr.5, Mótasmíði ehf.
=== 6.Iðngarðar 19 - umsókn um lóð ===
2209048
Mál áður á dagskrá á 38. fundi ráðsins. Frekari gögn hafa borist og kynnigarferli deiliskipulags Iðngarða er lokið.
Samþykkt að úthluta lóðinni til Seve Iceland ehf. með fyrirvara um samþykki landeigenda fyrir útgáfu lóðarleigusamnings.
=== 7.Gauksstaðir - Fyrirspurn vegna endurbyggingar á mhl. 03 og breytta staðsetningu ===
2307038
Mál áður á dagskrá 46. fundar ráðsins og er tekið fyrir að nýju á grundvelli nýrra gagna.
Byggingaráform samþykkt, með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
=== 8.Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar - Endurskoðun ===
2309047
Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar lögð fram til umsagnar.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við skipulags- og matslýsinguna.
=== 9.Regnbogagötur ===
2308015
Tillaga frá íbúa lögð fram um regnbogastræti í sveitarfélaginu til að fagna fjölbreytileikanum.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og leggur til að hugmyndin verði útfærð í upphafi næsta sumars. Lagt er til að óskað verði eftir tillögum að staðsetningu frá íbúum.
=== 10.Samgönguáætlun - sjóvarnir ===
2210020
Minnisblað deildarstjóra umhverfismála lagt fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram til upplýsingar.
=== 11.Garðbraut - börn og bílaumferð ===
2305065
Farið yfir stöðu mála varðandi úrbætur á hluta Garðbrautar
Deildarstjóri umhverfismála fór yfir það sem búið er að gera og það sem er eftir.
=== 12.Umferðarmál í Suðurnesjabæ ===
2309076
Umferðarmál við Stafnesveg lögð fram til kynningar og umræðu.
Farið yfir fyrirhugaða breikkun Stafnesvegar að Skerjahverfi ásamt breytingum á útfærslu hámarkshraða og þungatakmörkunum sem settar hafa verið á veginn.
=== 13.Aðalskoðun leiksvæða ===
2011097
Staða leiksvæða lögð fram til kynningar
Ráðið felur Deildarstjóra umhverfismála að leggja fram 4 ára áætlun um endurnýjun og viðhald leiksvæða sveitarfélagsins ásamt áætluðum kostnaði hvers árs.
=== 14.Starfsáætlun Skipulags- og Umhverfissviðs 2024 ===
2309075
Starfsáætlun Skipulags- og umhverfissviðs lögð fram til kynningar
Lagt fram til upplýsingar og umræðu.
Fundi slitið - kl. 19:50.